Back to results

University of Iceland

Ímynd TM meðal háskólanema

Abstract

dc:description.abstract

Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna ímynd TM meðal háskólanemenda á Íslandi og athuga hvar ímynd félagsins væri staðsett samanborið við hin stærstu tryggingafélögin, Sjóvá, Vís og Vörð. Einnig var varpað ljósi á stöðu TM hvað vörumerkjavitund og aðgreiningu varðar. Ímynd fyrirtækja er ein mikilvægasta eign þeirra. Eftir efnahagshrunið hefur verðmæti ímyndar einungis aukist. Mikil samkeppni hefur ríkt á íslenska tryggingamarkaðnum sem gerir það að verkum að ímynd tryggingafélaganna verður sífellt ríkari þáttur í markaðsstarfinu. Vegna einsleitni tryggingamarkaðarins er síður en svo auðvelt fyrir tryggingafélög að aðgreina sig hver frá öðru, þar sem þjónustan sem þau veita er sú sama. Rannsakandi notast við megindlega aðferðafræði í rannsókn sinni og var spurningalisti dreifður út á vefformi. Þrettán staðhæfingar voru settar fram sem eiga að meta ímynd TM og þeirra helstu samkeppnisaðila. Niðurstöður voru síðan birtar á vörukorti. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að þrátt fyrir neikvætt viðhorf gagnvart tryggingafélögum nú í dag mætti með sanni segja að ímynd TM sé skýr miðað við önnur tryggingafélög á íslenskum markaði. Vörumerkið sjálft er sterkt og samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er félagið með einna jákvæðustu ímyndina af þessum fjórum stærstu félögum á tryggingamarkaðnum. TM var ekki einvörðungu talið vera með jákvæðustu ímyndina heldur að auki það félag sem flestir háskólanemar myndu velja ef þeir væru að tryggja sig í dag. Mikil samkeppni er á tryggingamarkaðnum og í ljósi þessarar samkeppni er athyglisvert að ímynd stærstu tryggingafélaganna tveggja, Vís og Sjóvá, er sögð vera einna neikvæðust. Vís og Sjóvá hafa verið stærst á markaði í langan tíma en ályktun rannsakanda er sú að hin félögin eru smám saman að sækja í sig veðrið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þóra Hrund Jónsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/8185
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/8185

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þóra Hrund Jónsdóttir 1988-. Ímynd TM meðal háskólanema. 2011. http://hdl.handle.net/1946/8185