University of Iceland
Þýðing og forprófun á endurbættri útgáfu Sjálfsmyndarspurningalista Offer (OSIQ-R). Tengsl sjálfsmyndar við kyn, aldur, bakgrunn og heilsu íslenskra unglinga
Abstract
dc:description.abstractHjúkrun barna kallar á aðferðir við að meta sjálfsmynd barna í þroska, heilsu og veikindum. Rannsóknir hafa sýnt að Sjálfsmyndarspurningalisti Offer hefur verið gagnlegur til að fá viðmið og nákvæmni í mati á breytingum í sjálfsmynd barna í alvarlegum veikindum. Markmið verkefnisins var að þýða og forprófa endurbætta útgáfu listans (Offer Self-Image Questionnaire, Revised; OSIQ-R). Megintilgangur var að skoða áreiðanleika og réttmæti OSIQ-R í íslenskri þýðingu (ÍsOSIQ-R) og vísbendingar um aldurs- og kynjamun í sjálfsmynd íslenskra unglinga og tengsl við bakgrunn og heilsu. Hentugleikaúrtak 607 nemenda þriggja skóla á Reykjavíkursvæðinu skilaði 357 svörum (59% svarhlutfall) í þremur aldurshópum, 13-14 ára (N=117), 15-16 ára (N=115) og 17-18 ára (N=125). Spurningum ÍsOSIQ-R listans (129 staðhæfingar á 12 kvörðum) var svarað á 6 atriða Likert-kvarða sem dreifist frá ,,lýsir mér mjög vel” til ,,lýsir mér engan veginn”. Auk spurninga um aldur og kyn voru 12 um félagslegan bakgrunn og heilsufar. Niðurstöður sýna að áreiðanleiki og réttmæti ÍsOSIQ-R svipar til erlendra niðurstaðna. Í heildarsjálfsmyndinni og fjölskylduvirkni var Chronbach’s alfa í kringum 0,90. Fimm kvarðar voru með alfa í kringum 0,7, þrír á bilinu 0,6-0,7 og þrír í kringum 0,5 þar sem hugsjónastefnu- og siðferðiskvarðar komu lægstir út. Niðurstöður á fylgni milli undirkvarða ÍsOSIQ-R voru ekki alltaf marktækar. Fylgni var jafnan veik (<0,3) þegar kynhneigð og hugsjónastefna komu við sögu. Aðrir kvarðar voru með fylgni á bilinu 0,3-0,7 með örfáum undantekningum yfir 0,8. Almennt var ekki kynja- og aldursmunur á heildarsjálfsmynd unglinganna. Sjö kvarðar sýndu marktækan kynjamun og einn útfrá aldri. Kynjamunurinn samræmist niðurstöðum erlendra rannsókna, en óljóst með aldursmun. Metin heilsa tengdist marktækt sjálfsmynd en bakgrunnsþættir ekki. Niðurstöður benda til að ÍsOSIQ-R geti nýst við frekari rannsóknir á sjálfsmynd íslenskra unglinga. Lykilhugtök: Sjálfsmynd, sjálfshugmynd, Sjálfsmyndarspurningalisti Offer, unglingar, langveikir, hjúkrun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Vigdís Hrönn Viggósdóttir 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/8035
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/8035