Back to results

University of Iceland

Samanburður á útkomu fyrirfram ákveðinna heimafæðinga og sjúkrahúsfæðinga á Íslandi 2005-2009. Afturvirk forrannsókn með tilfella-viðmiðasniði

Abstract

dc:description.abstract

Tíðni heimafæðinga á Íslandi hefur aukist hratt á síðustu árum, úr 0,7% árið 2000 í 1,8% árið 2009, í kjölfar sögulegrar lægðar í lok síðustu aldar. Ekki hefur verið gerð fræðileg rannsókn á útkomu heimafæðinga á Íslandi. Tilgangur meistaraverkefnisins var að þróa rannsóknaráætlun fyrir samanburð á útkomu fyrirfram ákveðinna heimafæðinga og sjúkrahúsfæðinga hjá sambærilegum hópi hraustra kvenna og forprófa áætlunina með forrannsókn. Samkvæmt hugmyndafræði ljósmæðra um fæðingu sem lífeðlislegt ferli, sem liggur rannsókninni til grundvallar, ætti heimafæðing að vera valkostur fyrir heilbrigðar konur með eðlilega meðgöngu að baki. Niðurstöður nýlegra, erlendra rannsókna hafa gefið til kynna að útkoma fyrirfram ákveðinna heimafæðinga sé betri en útkoma sjúkrahúsfæðinga hvað varðar inngrip og heilsufar móður og barns en ekki sé marktækur munur á tíðni burðarmálsdauða. Rannsóknin var megindleg með afturvirku tilfella-viðmiðasniði. Í tilfellahópi var hentugleikaúrtak 39 heimafæðinga úr þýði allra heimafæðinga á Íslandi á árunum 2005-2009. Í viðmiðahópi var markmiðsúrtak 39 sjúkrahúsfæðinga sem pöruðust við heimafæðingar og voru úr þýði án frábendinga fyrir heimafæðingu. Unnið var úr gögnum með lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði, Kí-kvaðratprófum, Wilcoxon-prófum og Fisher’s-prófum. Niðurstöður forrannsóknar leiddu í ljós góða útkomu móður og barns í báðum rannsóknarhópum. Tíðni inngripa var marktækt lægri hjá heimafæðingarhópi þótt til þeirra teldust fæðingar sem lauk á sjúkrahúsi. Apgarstig 5 mínútum eftir fæðingu voru marktækt betri hjá börnum sem fæddust heima. Niðurstöður íslensku forrannsóknarinnar samræmast niðurstöðum nýlegra, erlendra rannsókna á útkomu heimafæðinga. Þörf er á frekari rannsóknum sem ná til stærri rannsóknarhópa og skoða þætti sem geta haft áhrif á útkomu heimafæðinga, eins og búsetu, flutning og starfsreynslu ljósmóður. Lykilorð: Útkoma, fyrirfram ákveðin heimafæðing, fyrirfram ákveðin sjúkrahúsfæðing, ljósmóðir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berglind Hálfdánsdóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7994
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7994

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Hálfdánsdóttir 1973-. Samanburður á útkomu fyrirfram ákveðinna heimafæðinga og sjúkrahúsfæðinga á Íslandi 2005-2009. Afturvirk forrannsókn með tilfella-viðmiðasniði. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7994