Back to results

University of Iceland

Ég frétti það á Facebook: Vinsældir frétta á stærsta samfélagsvef heims

Abstract

dc:description.abstract

Á stærsta samfélagsvef heims, Facebook, er hægt að deila tenglum á fréttir veffréttamiðla. Vegna þessa gegnir Facebook sívaxandi hlutverki fréttaveitu hjá almenningi, en nú til dags kemur um fimmtungur þeirra sem heimsækja mbl.is á hverjum degi beint þaðan. Ritgerð þessi byggist á tvíþættri megindlegri rannsókn. Fyrri hluti kannar í hversu miklum mæli háskólanemar nota Facebook til að afla sér frétta og dreifa þeim. Einnig hvers konar efni þeir dreifa helst. Síðari hluti kannar hvers konar fréttir fá flestar tilvísanir frá Facebook á mbl.is. Niðurstöðurnar eru svo bornar saman við vinsælustu fréttir annarra lesenda. Einnig er skoðað hvort tilvísunum frá Facebook fjölgaði með tilkomu „Líkar“- hnapps. Niðurstöðurnar sýna fram á að háskólanemar eru duglegir við að dreifa fréttaefni á Facebook og að lesa það sem aðrir deila. Afþreyingarefni er í meirihluta þess efnis sem þeir dreifa, en hefðbundnar fréttir fá lítið pláss. Afþreyingarefni er þar að auki í miklum meirihluta þess efnis sem fær flestar tilvísanir frá Facebook. Aðrir lesendur mbl.is lesa líka mikið af afþreyingarefni, en einnig eru andlátsfréttir mjög vinsælar. Rannsóknin sýnir fram á að það margborgar sig fyrir veffréttamiðla að bjóða upp á „Líkar“- takka, því tilvísunum frá Facebook hefur fjölgað gríðarlega með tilkomu hans.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lovísa Árnadóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7970
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7970

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lovísa Árnadóttir 1979-. Ég frétti það á Facebook: Vinsældir frétta á stærsta samfélagsvef heims. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7970