Back to results

University of Iceland

Forvarnargildi íþrótta og munntóbak

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu verkefni var sjónum beint að tengslum íþróttiðkunar unglinga með íþróttafélagi við notkun þeirra á áfengi og tóbaki. Sérstök áhersla var lögð á að skoða tengsl íþróttaiðkunar með íþróttafélagi og notkun á munntóbaki. Stuðst var við fyrri rannsóknir sem hafa sýnt að unglingar sem iðka íþróttir með íþróttafélagi neyta síður áfengis og tóbaks en þeir sem stunda ekki íþróttir. Jafnframt gera kenningar í félagsfræði ráð fyrir því að þeir sem eru í góðum tengslum við stofnanir samfélagsins séu ólíklegri til að sýna af sér frávikshegðun. Í ritgerðinni verður vitnað í fyrri rannsóknir og vísað í kenningar um viðfangsefnið. Til að skoða tengslin betur voru notuð gögn frá rannsóknarmiðstöðinni Rannsóknum og greiningu úr rannsókn á nemendum í 8., 9. og 10. bekk á Íslandi árið 2008. Niðurstöðurnar sýndu að þeir unglingar sem stunda íþróttir með íþróttafélagi nota síður áfengi og reykja síður en þeir sem stunda ekki íþróttir. Aftur á móti mældist lítill munur á þeim sem stunduðu íþróttir með íþróttafélagi og þeim sem gerðu það ekki þegar notkun munn- og neftóbaks var skoðuð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Halldór Árnason 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7219
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7219

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halldór Árnason 1984-. Forvarnargildi íþrótta og munntóbak. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7219