{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/7195"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/7195","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Er þörf fyrir sértæka kynheilbrigðisþjónustu ætlaða unglingum á Íslandi?","abstract":"Í þessu verkefni er leitast við að svara eftirfarandi spurningum; Er þörf fyrir sértæka kynheilbrigðisþjónustu fyrir unglinga á Íslandi? Hvernig er kynheilbrigði unglinga á Íslandi? Hefur klámvæðing áhrif á kynheilbrigði unglinga? Til að leita svara verður fjallað um hugtökin kynheilbrigði, klám og klámvæðingu og þau tengd við líf unglingsins. Þróun einstaklings á unglingsárunum verður skoðuð og reynt að varpa ljósi á þær breytingar sem eiga sér stað hjá einstaklingum á þeim tíma. Rætt verður um kynheilbrigði og kynhegðun unglinga í ljósi þeirrar klámvæðingar sem einkennir samfélag nútímans, þar sem fjöldi kynsjúkdómasmita, þungana og fóstureyðinga hjá þessum aldurshóp verður skoðaður. Litið verður til sögu sértækrar kynheilbrigðisþjónustu fyrir unglinga hér á landi og hún borin saman við þjónustuna sem er í boði nú á dögum með það að markmiði hvort nauðsyn sé að bæta hana eða sérsníða á einhvern hátt. Auk þess verður sambærileg þjónusta í nágrannalöndunum skoðuð og bæði erlendar og innlendar rannsóknir á óskum unglinganna fyrir slíkri þjónustu. Á Íslandi er fjöldi klamydíu – og kynfæravörtusmita hlutfallslega hærri en í nágrannalöndum okkar og er sýkingin algengust hjá stúlkum á aldrinum 15-20 ára. Auk þess hefur fjöldi fæðinga og fóstureyðinga hér á landi hjá ungu fólki undir 20 ára verið töluvert hærri ef miðað er við Norðurlöndin síðustu árin, en má þó sjá að eitthvað hafi dregið úr þeim fjölda nú á síðari árum. Sértækar kynheilbrigðisþjónustur fyrir unglinga hafa verið starfræktar um nokkurra áratuga skeið í löndum eins og Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkjunum með mjög góðum árangri. Þar er starfsfólkið sérþjálfað til að mæta þörfum unga fólksins sem þangað leitar auk þess sem það fer reglulega á símenntunarnámskeið á vegum heilbrigðisstofnunarinnar og sveitarfélaganna. Þrátt fyrir að sérstakar unglingamóttökur hafi opnað víðsvegar um landið í kringum 1999-2003 og þær verið ágætlega sóttar, var búið að loka þeim flest öllum árið 2007. Kannanir sem gerða hafa verið hér á landi á meðal unglinga hafa allar sýnt mikinn áhuga þeirra á að sækja slíka þjónustu og þó svo að enn sé fjöldi kynsjúkdómasmita og þungana mikill hjá hjá ungu fólki hafa þessar móttökur ekki opnað á ný til að veita unglingum þá þjónustu sem þeir óska eftir.","abstract_html":"Í þessu verkefni er leitast við að svara eftirfarandi spurningum; Er þörf fyrir sértæka kynheilbrigðisþjónustu fyrir unglinga á Íslandi? Hvernig er kynheilbrigði unglinga á Íslandi? Hefur klámvæðing áhrif á kynheilbrigði unglinga? Til að leita svara verður fjallað um hugtökin kynheilbrigði, klám og klámvæðingu og þau tengd við líf unglingsins. Þróun einstaklings á unglingsárunum verður skoðuð og reynt að varpa ljósi á þær breytingar sem eiga sér stað hjá einstaklingum á þeim tíma. Rætt verður um kynheilbrigði og kynhegðun unglinga í ljósi þeirrar klámvæðingar sem einkennir samfélag nútímans, þar sem fjöldi kynsjúkdómasmita, þungana og fóstureyðinga hjá þessum aldurshóp verður skoðaður. Litið verður til sögu sértækrar kynheilbrigðisþjónustu fyrir unglinga hér á landi og hún borin saman við þjónustuna sem er í boði nú á dögum með það að markmiði hvort nauðsyn sé að bæta hana eða sérsníða á einhvern hátt. Auk þess verður sambærileg þjónusta í nágrannalöndunum skoðuð og bæði erlendar og innlendar rannsóknir á óskum unglinganna fyrir slíkri þjónustu. Á Íslandi er fjöldi klamydíu – og kynfæravörtusmita hlutfallslega hærri en í nágrannalöndum okkar og er sýkingin algengust hjá stúlkum á aldrinum 15-20 ára. Auk þess hefur fjöldi fæðinga og fóstureyðinga hér á landi hjá ungu fólki undir 20 ára verið töluvert hærri ef miðað er við Norðurlöndin síðustu árin, en má þó sjá að eitthvað hafi dregið úr þeim fjölda nú á síðari árum. Sértækar kynheilbrigðisþjónustur fyrir unglinga hafa verið starfræktar um nokkurra áratuga skeið í löndum eins og Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkjunum með mjög góðum árangri. Þar er starfsfólkið sérþjálfað til að mæta þörfum unga fólksins sem þangað leitar auk þess sem það fer reglulega á símenntunarnámskeið á vegum heilbrigðisstofnunarinnar og sveitarfélaganna. Þrátt fyrir að sérstakar unglingamóttökur hafi opnað víðsvegar um landið í kringum 1999-2003 og þær verið ágætlega sóttar, var búið að loka þeim flest öllum árið 2007. Kannanir sem gerða hafa verið hér á landi á meðal unglinga hafa allar sýnt mikinn áhuga þeirra á að sækja slíka þjónustu og þó svo að enn sé fjöldi kynsjúkdómasmita og þungana mikill hjá hjá ungu fólki hafa þessar móttökur ekki opnað á ný til að veita unglingum þá þjónustu sem þeir óska eftir.","abstract_has_math":false,"creators":["Linda Sæberg 1982-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2011,"date_issued":"2011-01-11","date_published":"2011-01-11","updated_at":"2026-07-27T21:37:37Z","subjects":["Félagsráðgjöf","Unglingar","Kynhegðun","Klám","Heilbrigðisþjónusta"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/7195","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Linda Sæberg 1982-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2011-01-11T10:54:07Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2011-01-11T10:54:07Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2011-01-11"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Félagsráðgjöf","Unglingar","Kynhegðun","Klám","Heilbrigðisþjónusta"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/7195"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Í þessu verkefni er leitast við að svara eftirfarandi spurningum; Er þörf fyrir sértæka kynheilbrigðisþjónustu fyrir unglinga á Íslandi? Hvernig er kynheilbrigði unglinga á Íslandi? Hefur klámvæðing áhrif á kynheilbrigði unglinga? Til að leita svara verður fjallað um hugtökin kynheilbrigði, klám og klámvæðingu og þau tengd við líf unglingsins. Þróun einstaklings á unglingsárunum verður skoðuð og reynt að varpa ljósi á þær breytingar sem eiga sér stað hjá einstaklingum á þeim tíma. Rætt verður um kynheilbrigði og kynhegðun unglinga í ljósi þeirrar klámvæðingar sem einkennir samfélag nútímans, þar sem fjöldi kynsjúkdómasmita, þungana og fóstureyðinga hjá þessum aldurshóp verður skoðaður. Litið verður til sögu sértækrar kynheilbrigðisþjónustu fyrir unglinga hér á landi og hún borin saman við þjónustuna sem er í boði nú á dögum með það að markmiði hvort nauðsyn sé að bæta hana eða sérsníða á einhvern hátt. Auk þess verður sambærileg þjónusta í nágrannalöndunum skoðuð og bæði erlendar og innlendar rannsóknir á óskum unglinganna fyrir slíkri þjónustu. Á Íslandi er fjöldi klamydíu – og kynfæravörtusmita hlutfallslega hærri en í nágrannalöndum okkar og er sýkingin algengust hjá stúlkum á aldrinum 15-20 ára. Auk þess hefur fjöldi fæðinga og fóstureyðinga hér á landi hjá ungu fólki undir 20 ára verið töluvert hærri ef miðað er við Norðurlöndin síðustu árin, en má þó sjá að eitthvað hafi dregið úr þeim fjölda nú á síðari árum. Sértækar kynheilbrigðisþjónustur fyrir unglinga hafa verið starfræktar um nokkurra áratuga skeið í löndum eins og Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkjunum með mjög góðum árangri. Þar er starfsfólkið sérþjálfað til að mæta þörfum unga fólksins sem þangað leitar auk þess sem það fer reglulega á símenntunarnámskeið á vegum heilbrigðisstofnunarinnar og sveitarfélaganna. Þrátt fyrir að sérstakar unglingamóttökur hafi opnað víðsvegar um landið í kringum 1999-2003 og þær verið ágætlega sóttar, var búið að loka þeim flest öllum árið 2007. Kannanir sem gerða hafa verið hér á landi á meðal unglinga hafa allar sýnt mikinn áhuga þeirra á að sækja slíka þjónustu og þó svo að enn sé fjöldi kynsjúkdómasmita og þungana mikill hjá hjá ungu fólki hafa þessar móttökur ekki opnað á ný til að veita unglingum þá þjónustu sem þeir óska eftir."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Er þörf fyrir sértæka kynheilbrigðisþjónustu ætlaða unglingum á Íslandi?"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Linda Sæberg 1982-"],"dc:date.accessioned":["2011-01-11T10:54:07Z"],"dc:date.available":["2011-01-11T10:54:07Z"],"dc:date.issued":["2011-01-11"],"dc:description.abstract":["Í þessu verkefni er leitast við að svara eftirfarandi spurningum; Er þörf fyrir sértæka kynheilbrigðisþjónustu fyrir unglinga á Íslandi? Hvernig er kynheilbrigði unglinga á Íslandi? Hefur klámvæðing áhrif á kynheilbrigði unglinga? Til að leita svara verður fjallað um hugtökin kynheilbrigði, klám og klámvæðingu og þau tengd við líf unglingsins. Þróun einstaklings á unglingsárunum verður skoðuð og reynt að varpa ljósi á þær breytingar sem eiga sér stað hjá einstaklingum á þeim tíma. Rætt verður um kynheilbrigði og kynhegðun unglinga í ljósi þeirrar klámvæðingar sem einkennir samfélag nútímans, þar sem fjöldi kynsjúkdómasmita, þungana og fóstureyðinga hjá þessum aldurshóp verður skoðaður. Litið verður til sögu sértækrar kynheilbrigðisþjónustu fyrir unglinga hér á landi og hún borin saman við þjónustuna sem er í boði nú á dögum með það að markmiði hvort nauðsyn sé að bæta hana eða sérsníða á einhvern hátt. Auk þess verður sambærileg þjónusta í nágrannalöndunum skoðuð og bæði erlendar og innlendar rannsóknir á óskum unglinganna fyrir slíkri þjónustu. Á Íslandi er fjöldi klamydíu – og kynfæravörtusmita hlutfallslega hærri en í nágrannalöndum okkar og er sýkingin algengust hjá stúlkum á aldrinum 15-20 ára. Auk þess hefur fjöldi fæðinga og fóstureyðinga hér á landi hjá ungu fólki undir 20 ára verið töluvert hærri ef miðað er við Norðurlöndin síðustu árin, en má þó sjá að eitthvað hafi dregið úr þeim fjölda nú á síðari árum. Sértækar kynheilbrigðisþjónustur fyrir unglinga hafa verið starfræktar um nokkurra áratuga skeið í löndum eins og Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkjunum með mjög góðum árangri. Þar er starfsfólkið sérþjálfað til að mæta þörfum unga fólksins sem þangað leitar auk þess sem það fer reglulega á símenntunarnámskeið á vegum heilbrigðisstofnunarinnar og sveitarfélaganna. Þrátt fyrir að sérstakar unglingamóttökur hafi opnað víðsvegar um landið í kringum 1999-2003 og þær verið ágætlega sóttar, var búið að loka þeim flest öllum árið 2007. Kannanir sem gerða hafa verið hér á landi á meðal unglinga hafa allar sýnt mikinn áhuga þeirra á að sækja slíka þjónustu og þó svo að enn sé fjöldi kynsjúkdómasmita og þungana mikill hjá hjá ungu fólki hafa þessar móttökur ekki opnað á ný til að veita unglingum þá þjónustu sem þeir óska eftir."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/7195"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Félagsráðgjöf","Unglingar","Kynhegðun","Klám","Heilbrigðisþjónusta"],"dc:title":["Er þörf fyrir sértæka kynheilbrigðisþjónustu ætlaða unglingum á Íslandi?"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:37:37Z"}