Abstract
dc:description.abstractMargir ferðamannastaðir á Íslandi eru farnir að láta á sjá vegna aukins fjölda ferðamanna og álags síðustu ár. Ferðamönnum fjölgar hratt en uppbygging helstu ferðamannastaða stendur í stað. Ríkisstjórnin ver hluta af skatttekjum í uppbyggingu ferðamannastaða en ljóst er að þörf er á mun meira fjármagni til að staðirnir standist kröfur og væntingar ferðamanna. Stjörnvöld hafa því rætt um að koma á gjaldtöku í einhverri mynd á ferðamannastöðum. Það er hægt að fara margar leiðir að slíkri gjaldtöku en stjórnvöld hafa einblínt mest á svokölluð gistináttagjöld sem yrðu sett á allar seldar gistinætur í landinu og farþegagjöld, sem yrðu sett á öll fargjöld til og frá landinu. Ekki hefur enn náðst niðurstaða um hvaða leið verður farin í málinu. Þessi rannsókn kannaði viðhorf Íslendinga til væntanlegrar gjaldtöku. Aðrar rannsóknir hafa einblínt meira á áhrif gjaldtöku á erlenda ferðamenn á Íslandi en hér var horft til heimamannanna. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að meiri hluti Íslendinga styðja gjaldtökur sem fara í uppbyggingu ferðamannastaða en svo eru skiptar skoðanir um hvernig og hvaðan peningarnir eigi að koma.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásta Ragna Stefánsdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/6991
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/6991