University of Iceland
Tannsmiðir á tímamótum. Frá fagi í mótun til formlegs náms, áhrif kerfis- og bóknámsreks á menntun íslenskra tannsmiða
Abstract
dc:description.abstractTilgangur: Ritgerðin er lokaverkefni höfunda til BS prófs í tannsmíði við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands haustið 2010. Leitað var svara við rannsóknarspurningunni: Hvernig hefur þróun fagsviðs og bóknámsrek haft áhrif á menntun íslenskra tannsmiða? Megintilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á þróun fagsviðs tannsmiða, áhrif bóknámsreks á menntun tannsmiða og áhrif námskráreks og kerfisreks á námskröfur í tannsmíði. Aðferðir: Við rannsóknina voru notaðar eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir auk starfendarannsókna. Tekin voru viðtöl við heimildarmenn og spurningakönnun send til hentugleikaúrtaks. Leitað var íslenskra frumheimilda og stuðst við birt og óbirt gögn sem varða sögu Tannsmiðafélags Íslands auk ýmissa heimilda sem varða kennsluþróun í tannsmíði hér á landi og erlendis. Samanburður var gerður á námskrá í tannsmíði frá byrjun skipulagðrar kennslu í faginu til gildandi kennsluskrár Háskóla Íslands. Einnig var rakin þróun fagsins og starfsstéttarinnar á Íslandi. Rakið var hvernig menntun tannsmiða hefur verið háttað hér á landi, hvað hefur breyst og hvers vegna. Hugtökin bóknámsrek (e. academic drift), stofnanarek (e. institutional drift), kerfisrek (e. system drift), nemendarek (e. drift of the student body), deildarrek (e. faculty drift) og námskrárrek (e. curriculum drift) voru skoðuð. Niðurstöður: Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að framfarir í tannsmíði hafa verið miklar frá því að nám og kennsla hófst hér á landi í faginu. Hægfara áhrifa þeirra gætir í námskröfum og námskrám, sem síðar leiddi til bóknámsreks og að lokum til kerfisreks innan stofanna. Ályktun: Af niðurstöðum rannsóknarinnar má álykta að þær breytingar á námi tannsmiða úr því að vera nám á framhaldsskólastigi í það að vera nám á háskólastigi hafi verið í rökréttu samhengi við þróun fagsviðsins og samræmist kröfum gerðum til kunnáttu tannsmiða í dag. Eins muni breytingarnar stuðla að jákvæðri þróun námsins og tannsmíðafagsins á Íslandi, bæði nemendum og skjólstæðingum til hagsbóta.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Aðalheiður Svana Sigurðardóttir 1967-
- Vigdís Valsdóttir 1954-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/6324
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/6324