Back to results

University of Iceland

Tvíhljóðun í íslensku. Um tvíhljóðun og þróun tvíhljóða í íslensku máli til forna

Abstract

dc:description.abstract

Tímabilið í sögu íslenska hljóðkerfisins, sem hér verður til umfjöllunar, spannar frá miðri 12. öld og fram á þá 16. Í upphafi þessa tímabils átti íslenska þrjú tvíhljóð, au, ei og ey, en snemma tvíhljóðuðust einnig é, æ, ó og á. Um skeið átti íslenska því sjö tvíhljóð en jafnan er gert ráð fyrir fimm í nútímaíslensku. Eftir samfall ey við ei og klofning é í samband j og e fækkaði eiginlegum tvíhljóðum um tvö. Ef undan er skilin lausleg umfjöllun í yfirlitsritum hefur ekki áður verið ritað um þessar breytingar í heildarsamhengi. Þessi ritgerð fjallar ofangreindar um tvíhljóðanir en einnig almennt um þróun tvíhljóða – bæði hinna gömlu og nýju – fram að tíma hljóðdvalarbreytingarinnar á 16. öld. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að endurskoða þurfi ýmsar viðteknar hugmyndir um sögu tvíhljóðanna. Til að mynda bendir flest til þess að tvíhljóðin þrjú, sem forníslenska erfði frá samnorrænu, au, ei og ey, hafi haft hljóðgildin [ɔu], [ɛi] og [øy] fremur en [au], [ei] og [øy] eins og jafnan er haldið fram. Jafnframt hefur komið í ljós að tvíhljóðun ónálægu löngu sérhljóðanna hófst fyrr en hingað til hefur verið talið, eða þegar í lok 12. aldar í tilviki frammæltu hljóðanna é og æ, en sennilega um hálfri öld síðar í tilviki ó og á. Einnig hefur komið á daginn að áhrif tvíhljóðunar á stafsetningu handrita eru víðtækari en ætla mætti við fyrstu sýn og stafar það sennilega af þeirri umbyltingu sem verður á sérhljóðakerfinu á 13. til 14. öld og rætt er um í ritgerðinni. Eftir hana hafa tvíhljóð aðra stöðu í hljóðkerfinu en áður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aðalsteinn Hákonarson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6272
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6272

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aðalsteinn Hákonarson 1981-. Tvíhljóðun í íslensku. Um tvíhljóðun og þróun tvíhljóða í íslensku máli til forna. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6272