Back to results

University of Iceland

Lífsgæði barna og unglinga með fæðuofnæmi: Heimildarannsókn og drög að fræðslubæklingi

Abstract

dc:description.abstract

Lífsgæðamælingar hafa aukist verulega í gegnum árin og að auki hafa margar skilgreiningar á hugtakinu lífsgæði komið fram. Fjölmargar rannsóknir hafa skoðað áhrif ýmissa þátta á lífsgæði, hvort sem það eru lífsgæði barna, unglinga eða fullorðinna. Tilgangur þessa verkefnis var að kanna hvaða þættir hafa áhrif á lífsgæði barna og unglinga en sérstaklega var litið á fæðuofnæmi. Þær rannsóknarspurningar sem lagðar voru upp í verkefninu voru: Hvaða þættir eru taldir hafa áhrif á lífsgæði barna og unglinga? Hver eru tengsl fæðuofnæmis við lífsgæði þessa hóps? Hver eru tengsl fæðuofnæmis við lífsgæði foreldra barna og unglinga með greint fæðuofnæmi? Skoðaðar voru heimildir frá viðurkenndum leitarvélum með tilliti til lífsgæða barna og unglinga á aldrinum 6-18 ára, foreldra þeirra, fæðuofnæmis og fleiri þátta. Rannsóknir sýna að fæðuofnæmi hefur marktæk áhrif á lífsgæði barna og unglinga, bæði félagsleg, líkamleg og andleg. Að auki sýna foreldrar þessara barna og unglinga aukinn kvíða og áhyggjur. Rannsóknir sýna einnig að lífsgæði barna minnka með hækkandi aldri og er sú niðurstaða meira áberandi á meðal stúlkna en drengja. Verkefnið er framlag til þekkingarþróunar í hjúkrunarfræði og hefur því ákveðið gildi fyrir hjúkrun þar sem mikilvægt er að koma auga á þá þætti er valda skertum lífsgæðum á meðal barna og unglinga, einkum til fyrirbyggingar. Að auki skilar verkefnið af sér drögum að efni í fræðslubækling fyrir foreldra barna og unglinga með greint fæðuofnæmi. Lykilorð: Fæðuofnæmi, lífsgæði, heilsutengd lífsgæði, börn, unglingar

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Hrönn Halldórsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/5420
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/5420

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Hrönn Halldórsdóttir 1979-. Lífsgæði barna og unglinga með fæðuofnæmi: Heimildarannsókn og drög að fræðslubæklingi. 2010. http://hdl.handle.net/1946/5420