Back to results

University of Iceland

Áhrif gervigreindar á hönnunarferli veflausna

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig notkun gervigreindar hefur áhrif á hönnunarferli veflausna, hvernig hönnuðir nýta gervigreindarverkfæri í daglegu starfi og hvaða áhrif notkunin hefur á skapandi ferli þeirra. Á síðustu árum hefur aðgengi að gervigreindarverkfærum aukist verulega og notkun þeirra orðið sífellt algengari meðal hönnuða. Þessi þróun vekur upp spurningar um hvernig slík verkfæri hafa áhrif á vinnulag, ákvarðanatöku og útkomu hönnunar. Rannsóknin byggir á eigindlegri nálgun þar sem aflað var gagna frá 20 þátttakendum sem koma að hönnun veflausna. Gögnum var safnað með opnum spurningum og þau greind með þemagreiningu. Markmiðið var að fá dýpri innsýn í upplifun og viðhorf hönnuða til notkunar gervigreindar í daglegu starfi. Helstu niðurstöður sýna að gervigreind er orðin algengur hluti af hönnunarferli margra hönnuða, sérstaklega á fyrstu stigum hönnunarferlisins, svo sem í hugmyndavinnu, rannsóknum og gerð frumgerða. Þátttakendur upplifa að gervigreind auki hraða og skilvirkni, auðveldi að prófa mismunandi hugmyndir og styðji við upphaf hugmyndasköpunar. Á sama tíma benda niðurstöður til þess að áhrif á gæði séu ekki jafn skýr. Þó að sumir telji að gervigreind geti stutt við betri lausnir, leggja margir áherslu á að mannleg dómgreind, reynsla og samhengi séu áfram lykilatriði til að tryggja raunveruleg gæði. Einnig kemur fram að notkun gervigreindar geti haft áhrif á sköpun. Hún getur bæði lagt til hugmyndir og veitt innblástur en einnig skapað hættu á einsleitni þegar svipaðar lausnir eru endurteknar. Því þarf meðvitaða notkun og gagnrýna nálgun til að viðhalda fjölbreytileika og tryggja notendamiðaða hönnun. Niðurstöður benda til þess að hlutverk hönnuða sé í stöðugri þróun með tilkomu gervigreindar. Vaxandi hlutverk hönnuða er að halda yfirsýn, meta niðurstöður gervigreindar, velja úr hugmyndum og aðlaga þær að þörfum notenda og samhengi verkefna. Rannsóknin sýnir að gervigreind sé ekki staðgengill hönnuða heldur stuðningsverkfæri sem getur aukið skilvirkni og breytt áherslum í hönnunarferlinu, en krefst áfram virkrar þátttöku og gagnrýninnar hugsunar hönnuða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hilmir Berg Halldórsson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53167
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53167

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hilmir Berg Halldórsson 2000-. Áhrif gervigreindar á hönnunarferli veflausna. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53167