Back to results

University of Iceland

Skuldatryggingar og aðrar lánaafleiður og áhrif þeirra á fjármálahrunið

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um skuldatryggingar og aðrar lánaafleiður. Nokkrar helstu tegundir lánaafleiða eru kynntar og útskýrt er hvernig samningum með þær er háttað. Skuldatryggingar eru sérstaklega teknar fyrir, uppbygging samnings og saga þeirra skoðuð, einnig er útskýrt hvernig skuldatryggingarálag er reiknað. Reynt var að varpa ljósi á hvort skuldatryggingar og aðrar lánaafleiður hafi haft áhrif á fjármálahrunið. Viðskipti með skuldatryggingar hafa aukist gífurlega seinasta áratuginn, sérstaklega viðskipti sem átt eru með skuldatryggingar í spákaupmennsku. Þegar athugað var hvernig lánaafleiður voru notaðar hjá bönkunum hér á landi sést að þær voru ekki notaðar til áhættustjórnunar heldur, sem dæmi, til að hafa áhrif á skuldatryggingarálag bankans eða koma bankanum frá ítarlegri skoðun fjármálaeftirlitsins vegna of lágs eiginfjárgrunns miðað við áhættugrunn. Með þessari notkun lánaafleiðanna í aðdraganda fjármálahrunsins má sjá að þær voru þáttur sem hafði áhrif á fjármálahrunið en voru líklega ekki orsök þess þar sem mun fleiri þættir koma þar að. Með hertari lögum og reglugerðum varðandi lánaafleiðusamninga og með því að koma viðskiptum með þær á skipulega markaði mætti komast hjá því að lánaafleiður séu notaðir á þann hátt sem raun bar vitni í aðdraganda fjármálahrunsins og koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig varðandi þær.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Dýrleif Bára Einarsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/5250
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/5250

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Dýrleif Bára Einarsdóttir 1986-. Skuldatryggingar og aðrar lánaafleiður og áhrif þeirra á fjármálahrunið. 2010. http://hdl.handle.net/1946/5250