Back to results

University of Iceland

Frelsið að lifa lífinu lifandi: Réttur fatlaðs fólks til að njóta frístunda og félagslífs án mismununar

Abstract

dc:description.abstract

Öll eigum við rétt á því að njóta tómstunda og félagslífs, enda má ætla að þessi réttur stuðli að auknum lífsgæðum manna, sjálfstæði og sjálfsöryggi svo eitthvað sé nefnt. Jafnvel þótt að flestu fólki finnist það vera sjálfsagður hlutur að fá að njóta lífsins algjörlega eins og það vill, þá er staðan í raun ekki sú sama fyrir alla. Í 65. gr. stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 er að finna eina mikilvægustu meginreglu íslensks réttar. Þessi meginregla nefnist jafnræðisreglan og segir að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Jafnvel þótt fatlað fólk sé ekki talið upp í upptalningu ákvæðisins þá heyrir það undir „stöðu að öðru leyti“ í ákvæðinu. Jafnræðisreglan leggur bann við mismunun, beinni jafnt sem óbeinni. Ljóst má vera að ákveðin mismunun ríkir í samfélagi okkar í dag hvað varðar réttindi fatlaðs fólks samanborið við réttindi ófatlaðs fólks, jafnframt nýtur ekki allt fatlað fólk sömu réttinda í raun. Í þessari ritgerð verða félagsleg réttindi fatlaðs fólks skoðuð, með áherslu á félagslíf og tómstundir, og unnið að því að komast að því hvort og þá hvernig fatlað fólk með sambærilegar stuðningsþarfir en mismunandi þjónustuúrræði hafa mismikið frelsi til þess að lífa lífinu á sínum eigin forsendum. Hér verður s.s. athugað hvort að fatlað fólk búi við ójöfn tækifæri til að lifa lífinu á sínum eigin forsendum, með áherslu á rétt til tómstunda og félagslífs. Sérstaklega verður litið til réttinda einstaklinga sem að búa í búsetukjörnum, og fá þar hefðbundin þjónustuúrræði, og staða þeirra borin saman við þá sem hafa notendastýrða persónulega aðstoð. Áhersla er lögð á þessa tvo hópa þar sem að þeir hafa sambærilega þjónustuþörf.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásdís Erna Vigfúsdóttir 2004-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52370
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52370

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásdís Erna Vigfúsdóttir 2004-. Frelsið að lifa lífinu lifandi: Réttur fatlaðs fólks til að njóta frístunda og félagslífs án mismununar. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52370