University of Iceland
Áhrif kynferðisofbeldis í æsku á tengslamyndun og seiglu: Að rjúfa vítahringinn
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin er lokaverkefni til BA-gráðu í félagsráðgjöf og fjallar um áhrif kynferðisofbeldis í æsku á tengslamyndun og seiglu á fullorðinsárum. Ritgerðin byggir á fræðilegu yfirliti þar sem kannað er hvaða verndandi þættir og aðferðir geta stutt einstaklinga sem urðu fyrir kynferðisofbeldi í æsku við að rjúfa vítahring ofbeldissambanda. Fjallað er um skilgreiningar á kynferðisofbeldi í æsku, algengi þess og umfang, sem og hugmyndina um vítahring ofbeldissambanda. Einnig eru helstu fræðikenningar kynntar, þar á meðal tengslakenningin, vistfræðikenningin og sjónarhorn áhættu og seiglu. Líkamlegar og sálrænar afleiðingar kynferðisofbeldis í æsku eru greindar, auk áhrifa þess á tengslamyndun og náin sambönd á fullorðinsárum. Þá er fjallað um verndandi þætti í bernsku, seiglu í kjölfar áfalla og leiðir til að rjúfa vítahring ofbeldissambanda, þar á meðal meðferðar- og stuðningsúrræði. Einnig er fjallað um það hvert hlutverk félagsráðgjafa í vinnu með börnum og fullorðnum er. Niðurstöður benda til þess að vítahringur ofbeldissambanda sé ekki óhjákvæmilegur heldur mótist af verndandi þáttum á mismunandi stigum, hjá einstaklingum sjálfum, innan fjölskyldunnar og í samfélaginu. Jafnframt undirstrikar það mikilvægi áfallamiðaðrar nálgunar í starfi félagsráðgjafa.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sunneva Lind Benónýsdóttir 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52300
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52300