Back to results

University of Iceland

Hönnun og þróun sjálfvirks sorpmóttökukerfis með vigtun og aðgangsstýringu

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið fjallar um hönnun og hugbúnaðarútfærslu á frumgerð sjálfsafgreiðslu í sorpmóttöku. Kerfið sameinar vigtun ökutækja, auðkenningu notanda, aðgangsstýringu og gagnaskráningu í SCADA-kerfinu Ignition. Vegna tímamarka voru engar raunverulegar vélbúnaðaruppsetningar framkvæmdar. Í stað þess voru öll merki, vigtarmælingar og auðkenningar hermdar. SQL-gagnagrunnur var notaður til að skrá brúttó-, tara- og nettóþyngd, ásamt notenda- og atviksupplýsingum. HMI-viðmót var hannað til að leiða ökumann í gegnum allt ferlið og rekstraraðili hefur aðgang að viðvörunum og bilanagreiningu. Prófanir voru framkvæmdar með at- burðarhermun og náðu bæði yfir venjulegt ferli og frávik. Niðurstöðurnar sýna að vinnsluflæði, útreikningar, viðvörunarhugsun og gagnaskráning virka áreiðanlega í þróunarumhverfi. Frumgerðin gefur til kynna að SCADA lausn geti stutt aukna skilvirkni og rekjanleika. Frekari prófanir með raunverulegum búnaði eru hins vegar nauðsynlegar til að staðfesta endanlega virkni kerfisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eyjólfur Emil Jóhannsson 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52091
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52091

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eyjólfur Emil Jóhannsson 1994-. Hönnun og þróun sjálfvirks sorpmóttökukerfis með vigtun og aðgangsstýringu. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52091