{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/51783"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/51783","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Fornaldar- og riddarasagnasafnið AM 343 a 4to: Rannsókn á skrift og gerð 15. aldar handrits","abstract":"15. aldar handritið AM AM 343 a 4to er talið skrifað á Möðruvöllum fram í Eyjafirði. Þetta er þykkt handrit sem inniheldur fornaldar- og riddarasögur. Í þessari ritgerð er gerð og ástandi handritsins lýst eins og það er nú. Það virðist skrifað sem ein heild og þó að bókfellið sé ekki af hæsta gæðaflokki hefur mikið verið lagt í gerð handritsins. Eigendasaga AM 343 a 4to er að mestu ókunn þar til það komst í eigu Árna Magnússonar. Kenningar eru uppi um að það hafi verið skrifað á Möðruvöllum fram um 1450–1475 og að aðalskrifari þess hafi mögulega verið Bjarni Ívarsson. Bjarni tengdist Möðruvöllum fram í gegnum föðursystur sína og síðar hjónaband. Rannsóknir fræðimanna eins og Stefáns Karlssonar, Christophers Sanders og Guðbjargar Kristjánsdóttur hafa stutt þær kenningar að hann sé mögulegur skrifari. Þó að Bjarni sé talinn aðalskrifari er einnig talið að fleiri hafi komið við sögu. Var því framkvæmd frumrannsókn á völdum þáttum í skrift til að reyna að varpa ljósi á spurninguna um hvort fleiri en einn skrifari hafi komið að gerð handritsins. Niðurstaða þeirrar rannsóknar er sú að mjög líklega hafa fleiri skrifarar skrifað stutta kafla, frá nokkrum línum upp í nokkrar síður en að einn aðalskrifari hafi skrifað meirihlutann. Ekki er fullljóst hve margir skrifarar hafa komið að gerð handritsins. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á það. Athugun á breytileika í skrift leiddi í ljós að líklega er meginefni handritsins með einni hendi en einnig hafa að minnsta kosti fjórir aðrir skrifarar skrifað stutta kafla, allt frá nokkrum línum upp í nokkrar síður. Ekki verður betur séð en þessir fjórir skrifarar hafi allir unnið samtíða aðalskrifaranum. Það gæti bent til þess að handritið hafi orðið til í samfélagi þar sem voru margir skrifandi menn.","abstract_html":"15. aldar handritið AM AM 343 a 4to er talið skrifað á Möðruvöllum fram í Eyjafirði. Þetta er þykkt handrit sem inniheldur fornaldar- og riddarasögur. Í þessari ritgerð er gerð og ástandi handritsins lýst eins og það er nú. Það virðist skrifað sem ein heild og þó að bókfellið sé ekki af hæsta gæðaflokki hefur mikið verið lagt í gerð handritsins. Eigendasaga AM 343 a 4to er að mestu ókunn þar til það komst í eigu Árna Magnússonar. Kenningar eru uppi um að það hafi verið skrifað á Möðruvöllum fram um 1450–1475 og að aðalskrifari þess hafi mögulega verið Bjarni Ívarsson. Bjarni tengdist Möðruvöllum fram í gegnum föðursystur sína og síðar hjónaband. Rannsóknir fræðimanna eins og Stefáns Karlssonar, Christophers Sanders og Guðbjargar Kristjánsdóttur hafa stutt þær kenningar að hann sé mögulegur skrifari. Þó að Bjarni sé talinn aðalskrifari er einnig talið að fleiri hafi komið við sögu. Var því framkvæmd frumrannsókn á völdum þáttum í skrift til að reyna að varpa ljósi á spurninguna um hvort fleiri en einn skrifari hafi komið að gerð handritsins. Niðurstaða þeirrar rannsóknar er sú að mjög líklega hafa fleiri skrifarar skrifað stutta kafla, frá nokkrum línum upp í nokkrar síður en að einn aðalskrifari hafi skrifað meirihlutann. Ekki er fullljóst hve margir skrifarar hafa komið að gerð handritsins. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á það. Athugun á breytileika í skrift leiddi í ljós að líklega er meginefni handritsins með einni hendi en einnig hafa að minnsta kosti fjórir aðrir skrifarar skrifað stutta kafla, allt frá nokkrum línum upp í nokkrar síður. Ekki verður betur séð en þessir fjórir skrifarar hafi allir unnið samtíða aðalskrifaranum. Það gæti bent til þess að handritið hafi orðið til í samfélagi þar sem voru margir skrifandi menn.","abstract_has_math":false,"creators":["Kolbrún Ýr Sigfúsdóttir 1979-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2026,"date_issued":"2026-01-06T09:23:54Z","date_published":"2026-01-06T09:23:54Z","updated_at":"2026-07-27T21:39:44Z","subjects":["Íslenska (námsgrein)","Lýsingar handrita","Handritarannsóknir"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"https://hdl.handle.net/1946/51783","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Kolbrún Ýr Sigfúsdóttir 1979-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2026-01-06T09:23:49Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2026-01-06T09:23:49Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2026-01-06T09:23:54Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Íslenska (námsgrein)","Lýsingar handrita","Handritarannsóknir"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["https://hdl.handle.net/1946/51783"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["15. aldar handritið AM AM 343 a 4to er talið skrifað á Möðruvöllum fram í Eyjafirði. Þetta er þykkt handrit sem inniheldur fornaldar- og riddarasögur. Í þessari ritgerð er gerð og ástandi handritsins lýst eins og það er nú. Það virðist skrifað sem ein heild og þó að bókfellið sé ekki af hæsta gæðaflokki hefur mikið verið lagt í gerð handritsins. Eigendasaga AM 343 a 4to er að mestu ókunn þar til það komst í eigu Árna Magnússonar. Kenningar eru uppi um að það hafi verið skrifað á Möðruvöllum fram um 1450–1475 og að aðalskrifari þess hafi mögulega verið Bjarni Ívarsson. Bjarni tengdist Möðruvöllum fram í gegnum föðursystur sína og síðar hjónaband. Rannsóknir fræðimanna eins og Stefáns Karlssonar, Christophers Sanders og Guðbjargar Kristjánsdóttur hafa stutt þær kenningar að hann sé mögulegur skrifari. Þó að Bjarni sé talinn aðalskrifari er einnig talið að fleiri hafi komið við sögu. Var því framkvæmd frumrannsókn á völdum þáttum í skrift til að reyna að varpa ljósi á spurninguna um hvort fleiri en einn skrifari hafi komið að gerð handritsins. Niðurstaða þeirrar rannsóknar er sú að mjög líklega hafa fleiri skrifarar skrifað stutta kafla, frá nokkrum línum upp í nokkrar síður en að einn aðalskrifari hafi skrifað meirihlutann. Ekki er fullljóst hve margir skrifarar hafa komið að gerð handritsins. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á það. Athugun á breytileika í skrift leiddi í ljós að líklega er meginefni handritsins með einni hendi en einnig hafa að minnsta kosti fjórir aðrir skrifarar skrifað stutta kafla, allt frá nokkrum línum upp í nokkrar síður. Ekki verður betur séð en þessir fjórir skrifarar hafi allir unnið samtíða aðalskrifaranum. Það gæti bent til þess að handritið hafi orðið til í samfélagi þar sem voru margir skrifandi menn."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Fornaldar- og riddarasagnasafnið AM 343 a 4to: Rannsókn á skrift og gerð 15. aldar handrits"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Kolbrún Ýr Sigfúsdóttir 1979-"],"dc:date.accessioned":["2026-01-06T09:23:49Z"],"dc:date.available":["2026-01-06T09:23:49Z"],"dc:date.issued":["2026-01-06T09:23:54Z"],"dc:description.abstract":["15. aldar handritið AM AM 343 a 4to er talið skrifað á Möðruvöllum fram í Eyjafirði. Þetta er þykkt handrit sem inniheldur fornaldar- og riddarasögur. Í þessari ritgerð er gerð og ástandi handritsins lýst eins og það er nú. Það virðist skrifað sem ein heild og þó að bókfellið sé ekki af hæsta gæðaflokki hefur mikið verið lagt í gerð handritsins. Eigendasaga AM 343 a 4to er að mestu ókunn þar til það komst í eigu Árna Magnússonar. Kenningar eru uppi um að það hafi verið skrifað á Möðruvöllum fram um 1450–1475 og að aðalskrifari þess hafi mögulega verið Bjarni Ívarsson. Bjarni tengdist Möðruvöllum fram í gegnum föðursystur sína og síðar hjónaband. Rannsóknir fræðimanna eins og Stefáns Karlssonar, Christophers Sanders og Guðbjargar Kristjánsdóttur hafa stutt þær kenningar að hann sé mögulegur skrifari. Þó að Bjarni sé talinn aðalskrifari er einnig talið að fleiri hafi komið við sögu. Var því framkvæmd frumrannsókn á völdum þáttum í skrift til að reyna að varpa ljósi á spurninguna um hvort fleiri en einn skrifari hafi komið að gerð handritsins. Niðurstaða þeirrar rannsóknar er sú að mjög líklega hafa fleiri skrifarar skrifað stutta kafla, frá nokkrum línum upp í nokkrar síður en að einn aðalskrifari hafi skrifað meirihlutann. Ekki er fullljóst hve margir skrifarar hafa komið að gerð handritsins. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á það. Athugun á breytileika í skrift leiddi í ljós að líklega er meginefni handritsins með einni hendi en einnig hafa að minnsta kosti fjórir aðrir skrifarar skrifað stutta kafla, allt frá nokkrum línum upp í nokkrar síður. Ekki verður betur séð en þessir fjórir skrifarar hafi allir unnið samtíða aðalskrifaranum. Það gæti bent til þess að handritið hafi orðið til í samfélagi þar sem voru margir skrifandi menn."],"dc:identifier.uri":["https://hdl.handle.net/1946/51783"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Íslenska (námsgrein)","Lýsingar handrita","Handritarannsóknir"],"dc:title":["Fornaldar- og riddarasagnasafnið AM 343 a 4to: Rannsókn á skrift og gerð 15. aldar handrits"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:39:44Z"}