University of Iceland
Risk of malnutrition in hospitalized children: Association with length of stay and readmissions within 30 days
Abstract
dc:description.abstractBakgrunnur og markmið: Vannæring barna á sjúkrahúsum er algengt og oft vangreint vandamál. Vannæring getur verið til staðar við innlögn eða þróast meðan á sjúkrahúsvist stendur. Klínískar afleiðingar vannæringar geta falist í tíðari sýkingum, auknum sjúkrahúskostnaði, lengri sjúkrahúslegu og auknum líkum á endurinnlögnum. Skimun fyrir hættu á vannæringu gegnir lykilhlutverki í að greina börn sem eru í hættu á vannæringu og tryggja að þau fái viðeigandi næringarmeðferð. Hérlendis hefur hætta á vannæringu barna á sjúkrahúsi aldrei verið metin áður. Skimun fyrir hættu á vannæringu barna hófst í september 2023 á Barnaspítala Hringsins, með notkun skimunartækisins STRONGkids (Screening Tool for Risk on Nutritional Status and Growth). Markmið þessarar rannsóknar var að skoða tíðni hættu á vannæringu hjá börnum á Barnaspítalanum. Annað markmið var að meta hvort börn sem eru í mikilli hættu á vannæringu við innlögn á Barnaspítala Hringsins séu líklegri til að hafa áður dvalið á sjúkrahúsi, hvort þau séu líklegri til að dvelja þar lengur eða leggjast inn aftur innan 30 daga frá útskrift þaðan. Aðferðir: Rannsóknin nær til 502 barna á aldrinum á aldrinum 1 mánaðar til 18 ára sem lögðust inn á Barnaspítala Hringsins á tímabilinu september 2023 til september 2024. Á Barnaspítalanum er hætta á vannæringu metin með STRONGkids skimunartækinu. STRONGkids skimunin flokkar börn í þrjá flokka eftir því hvort þau eru í lítilli, miðlungs eða mikilli hættu á vannæringu. Upplýsingar um fyrri innlagnir, legulengd og fjölda endurinnlagna innan 30 daga frá útskrift voru skráðar úr sjúkraskrá og bornar saman á milli áhættuhópa fyrir vannæringu. Niðurstöður: Alls voru 130 börn (25,9%) í lítilli hættu, 329 (65,5%) í miðlungs hættu og 43 börn (8,6%) í mikilli hættu á vannæringu. Marktækur munur var á lengd sjúkrahússlegu milli áhættuhópa (p <0,001), þar sem miðgildi legutíma var 3 dagar hjá börnum í lítilli hættu, 4 dagar meðal barna í miðlungs hættu og 6 dagar hjá börnum í mikilli hættu. Alls lögðust 65 börn (12,9%) inn aftur innan 30 daga frá útskrift. Hlutfall endurinnlagna var mismunandi milli STRONGkids áhættuhópa: 9,2% meðal barna í lítilli hættu, 11,2% meðal barna í miðlungs hættu og 37,2% meðal barna í mikilli hættu á vannæringu. Börn sem töldust í mikilli hættu á vannæringu voru líklegri, samanborið við börn í lítilli hættu, til að leggjast aftur inn á sjúkrahús innan 30 daga (OR = 5,27 (p <0,001) að teknu tilliti til aldurs og kyns. Ályktanir: Þessi rannsókn leiddi í ljós að töluverður hluti barna sem lögð voru inn á Barnaspítala Hringsins voru í miðlungs eða mikilli hættu á vannæringu. STRONGkids áhættustig tengdust marktækt lengri sjúkrahúslegu og auknum líkum á endurinnlögn innan 30 daga. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi skimunar fyrir hættu á vannæringu og vísa veginn til frekari rannsókna. Lykilorð: Börn, sjúkrahússlega, vannæring, STRONGkids, legulengd, endurinnlagnir, áhættumat
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Marta Kristjánsdóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51552
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51552