Back to results

University of Iceland

Grænlenska hagkerfið

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er gerð grein fyrir helstu einkennum grænlenska hagkerfisins. Í fyrstu er saga landsins reifuð til að gera grein fyrir uppruna hagkerfisins og þeirri menningu sem það byggir á. Tengsl Grænlands við Danmörku eru fyrirferðarmikil eftir seinni heimsstyrjöld og þá sérstaklega í efnahagslegu samhengi. Allt frá því á sjötta áratug síðustu aldar hafa Danir sent fjármagn til Grænlands í þeim tilgangi að lyfta kaupmætti Grænlendinga upp á það stig sem verið hefur í Danmörku. Þessar greiðslur eru settar í samhengi við kenningar um hollensku veikina og sérstaka grænlenska útgáfu af henni. Með þessu er gerð grein fyrir því hvers vegna hlutur hins opinbera er frekar í líkingu við það sem gerist á Kúbu en í þeim löndum sem Grænlendingar eiga mest samskipti við. Að lokum er litið á helstu vaxtarmöguleika í grænlensku atvinnulífi og hvaða breytingar þurfa að verða svo að Grænlendingar geti öðlast efnahagslegt sjálfstæði. Helstu niðurstöður eru þær að Grænlendingar þurfa að stuðla að hagræðingu hjá hinu opinbera auk þess að marka sér stefnu um markvisst afnám þeirra styrkja sem þeir njóta erlendis frá. Ólíklegt er að olíuvinnsla muni leysa efnahagsvandamál Grænlendinga í bráð heldur er nauðsynlegt að stuðla að eins fjölbreyttu og hagkvæmu efnahagslífi og mögulegt er á þessum slóðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðni Rúnar Gíslason 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/5140
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/5140

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðni Rúnar Gíslason 1985-. Grænlenska hagkerfið. 2010. http://hdl.handle.net/1946/5140