Back to results

University of Iceland

Afneitunarstefna í opinberri umræðu um stríðsglæpi japanska hersins í seinni heimsstyrjöldinni

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður farið yfir opinbera umræðu um stríðsglæpi japanska hersins í seinni heimsstyrjöldinni og leitast við að sjá hvaða þátt þeir sem hallast undir söguskoðun afneitunarstefnunnar eða svokallaðir afneitunarsinnar hafa átt í umræðunni. Hugtakið afneitunarstefna (e. historical denialism) er hugtak úr smíði sagnfræðingsins Henry Rousso sem notaði það upphaflega yfir þá sem hafna því að helförin hafi átt sér stað. Hugtakið er notað hér til þess að greina á milli þeirra sem aðhyllast endurskoðunarstefnu í fræðilegum skilningi og þeirra sem leitast til þess að afneita þekktum staðreyndum í pólitískum eða hugmyndafræðilegum tilgangi. Í þessari ritgerð er hugtakið afneitunarsinnar notað yfir þá sem leitast til að afneita þekktum staðreyndum um japanska stríðglæpi. Ritgerðinni er skipt upp í fjóra kafla þar sem farið er yfir fjögur tiltekin málefni sem hafa verið áberandi í opinberri umræðu um stríðið og stríðsminningar. Tveir kaflanna víkja að viðbrögðum við atburðum sem áttu sér stað á meðan stríðinu stóð. Þeir atburðir eru fjöldamorðin í Nanjing og kynlífsánauðin á vegum japanska hersins. Viðfangsefni hinna kaflanna eru umdeildir atburðir sem voru viðbrögð við stríðinu eða tilraunir til þess að gera upp söguna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórey Einarsdóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51407
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51407

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórey Einarsdóttir 2000-. Afneitunarstefna í opinberri umræðu um stríðsglæpi japanska hersins í seinni heimsstyrjöldinni. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51407