Back to results

University of Iceland

Cyberbullying Among Icelandic University Students: Prevalence, Manifestations, and Perpetrators' Personality Traits

Abstract

dc:description.abstract

Dökka fjórmenningarlíkanið (e. Dark Tetrad) á persónuleikaeinkennum (þ.e. Machiavellianismi, sjálfsdýrkun (e. narcissism), siðblinda og sadismi) hefur ítrekað verið tengt við andfélagslega hegðun í stafrænu umhverfi, m.a. neteinelti. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna algengi og birtingarmyndir neteineltis meðal háskólanema ásamt forspárgildi Dark Tetrad, upplifun fórnalamba neteineltis og mynstur samfélagsmiðlanotkunar og -fíknar. Þessi rannsókn leitast við að varpa ljósi á flókið samspil persónueinkenna, netnotkunar og andfélagslegrar hegðunar á netinu. Alls tóku 71 grunnnemi við Háskóla Íslands þátt og svöruðu spurningum um athafnir sínar á netinu og persónueinkenni. Niðurstöður leiddu í ljós að neteinelti hafði jákvæða fylgni við alla fjóra persónuleikaþætti Dark Tetrad en sambandið milli sjálfsdýrkunar og neteineltis náði ekki tölfræðilegri marktekt. Niðurstöður margfaldrar línulegrar aðhvarfsgreiningar sýndu fram á að einungis fyrri upplifun þátttakenda af því að verða fyrir neteinelti (e. cyber victimization) spáði marktækt fyrir um að þeir beittu aðra neteinelti (e. cyberbullying perpetration). Hvorki Dark Tetrad né óhófleg samfélagsmiðlanotkun (e. social media disorder) reyndust marktækir forspárliðir. Viðbótargreiningar leiddu í ljós að sjálfsdýrkun og machiavellianismi höfðu tengsl við athyglissækni á samfélagsmiðlum, sem gæti haft óbein tengsl við andfélagslega hegðun á netinu. Þessar niðurstöður benda til þess að fyrri reynsla af því að verða fyrir neteinelti sé sterkari undirstaða fyrir skilning á neteinelti meðal háskólanema en andfélagsleg persónueinkenni ein og sér. Lykilorð: Neteinelti; Dökka fjórmenningarlíkanið; Dökka þrímenningarlíkanið; Sadismi; andfélagsleg nethegðun; persónuleiki; samfélagsmiðlafíkn; Fórnalömb neteineltis

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Elísa Marie Guðjónsdóttir 2001-
  • Ólína Helga Sverrisdóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50391
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50391

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elísa Marie Guðjónsdóttir 2001-; Ólína Helga Sverrisdóttir 2000-. Cyberbullying Among Icelandic University Students: Prevalence, Manifestations, and Perpetrators' Personality Traits. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50391