University of Iceland
Dagforeldraforritið Dagný. Viðskiptalíkan fyrir smáforrit sem verður milliliður foreldra og dagforeldra
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um viðskiptahugmyndina að smáforritinu Dagný, sem er ætlað að vera milliliður foreldra og dagforeldra með því að einfalda umsóknarferlið og samskipti þar á milli. Með aðstoð Business Model Canvas er greint hvernig smáforritið getur skapað virði fyrir báða aðila og stuðlað að betri upplýsingagjöf, gagnsæi og skilvirkni í dagforeldrakerfinu. Viðskiptalíkanið er tvíþætt með áherslu á áskriftartekjur frá dagforeldrum annars vegar og auglýsingatekjum frá fyrirtækjum hins vegar. Dagforeldrakerfið hefur verið mikilvæg stoð í íslensku samfélagi með því að brúa stórt bil milli fæðingarorlofs og leikskóla hjá fjölda barna í gegnum árin. Það getur hins vegar ekki verið sagt að umsóknarferlið sé notendavænt, auðskilið eða skilvirkt í þeirri mynd sem það er í dag. Það er raunveruleg þörf á markaði fyrir betrumbætur á þessu sviði og eru báðir markhópar smáforritsins tilbúnir í að nýta sér betri lausn ef hún býðst. Raunveruleg þörf á markaði og framkvæmanlegt viðskiptamódel gefa til kynna að hugmyndin getur verið framkvæmanleg og arðbær með góðu markaðsstarfi og samstarfi við lykilaðila
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Garðar Elí Jónasson 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50093
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50093