University of Iceland
Forhæfing (prehabilitation) aðgerðasjúklinga -Heildræn nálgun á undirbúning sjúklinga sem fara í aðgerðir á kviðarholi. Kerfisbundin fræðileg samantekt
Abstract
dc:description.abstractBakgrunnur: Stórar kviðarholsaðgerðir geta falið í sér verulegt líkamlegt álag og áhættu á fylgikvillum. Hefðbundinn undirbúningur fyrir slíkar aðgerðir hefur að mestu miðast við áhættumat og meðferð undirliggjandi sjúkdóma. Nýlegar rannsóknir benda þó til þess að forhæfing, fyrirbyggjandi nálgun sem sameinar líkamlega þjálfun, næringarstuðning og sálrænan undirbúning, gæti haft jákvæð áhrif á bataferli sjúklinga. Tilgangur: Þessi kerfisbundna fræðilega samantekt miðar að því að meta áhrif forhæfingar á sjúklinga sem gangast undir kviðarholsaðgerðir og kanna hvort hún geti dregið úr fylgikvillum aðgerðar, stytt sjúkrahúsdvöl og bætt bataferli eftir aðgerðir. Aðferðafræði: Framkvæmd var yfirgripsmikil leit í rafrænum gagnagrunnum á grundvelli fyrirfram skilgreindra inntöku- og útilokunarskilyrða. Valdar voru rannsóknir sem lögðu áherslu á forhæfingaráætlanir sem innihéldu íhlutun í formi líkamlegrar þjálfunar, næringar- og sálræns stuðnings. Gæði rannsókna sem teknar voru inn í samantektina voru metin með stöðluðum verkfærum og niðurstöður samþættar í töflum til greininga. Niðurstöður: Niðurstöður einstakra rannsókna benda til þess að forhæfing geti dregið úr tíðni og alvarleika fylgikvilla. Í sumum tilvikum komu fram marktæk áhrif, meðal annars í formi færri fylgikvilla og minni heildarbyrði alvarlegra atvika. Aðrar rannsóknir sýndu hins vegar engin marktæk áhrif. Vísbendingar eru um að forhæfing geti bætt líkamlega getu og dregið úr kvíða fyrir aðgerð, þó þessi áhrif hafi ekki verið áberandi í öllum rannsóknum. Á heildina litið benda niðurstöðurnar til þess að áhrif forhæfingar séu breytileg og háð sjúklingaeiginleikum, tegund aðgerðar og framkvæmd íhlutunar. Þörf er á frekari rannsóknum með vel skilgreindum og stöðluðum forhæfingaráætlunum til að skýra betur hvaða sjúklingahópar og aðstæður hámarka mögulegan ávinning slíkrar ílhutunar. Ályktun: Forhæfing virðist vera gagnleg viðbót við hefðbundna meðferð skurðsjúklinga og gæti stuðlað að betra bataferli eftir skurðaðgerð. Fyrirliggjandi rannsóknir gefa vísbendingar um mögulegan ávinning forhæfingar, meðal annars hvað varðar fækkun alvarlegra fylgikvilla og hraðari endurheimt, þó niðurstöður séu ekki fullkomlega samhljóða. Frekari rannsóknir með vel skilgreindum forhæfingaráætlunum eru nauðsynlegar til að skýra áhrif íhlutunarinnar, ákvarða viðeigandi aðferð, skilgreina heppilega tímalengd og afmarka þá sjúklingahópa sem hafa mest gagn af forhæfingu. Lykilorð: forhæfing; kviðarholsaðgerðir; lifrar- og gallvegaaðgerðir; magaaðgerðir; ristil- og endaþarmsaðgerðir; lífsgæði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eyrún Harpa Hlynsdóttir 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49387
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49387