Back to results

University of Iceland

Lífeyrissjóðir sem hluthafar

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er fjallað um hvort, og þá að hvaða marki og hvernig, lífeyrissjóðir á Íslandi beita sér sem hluthafar í félögum. Kynnt er til sögunnar eftirfarandi rannsóknarspurning: Er ástæða til að setja skýrari reglur um fjárfestingar lífeyrissjóðanna, og hæfi, hæfni og val stjórnarmanna þeirra? Ritgerðin skiptist í þrjá kafla. Í fyrsta kafla er farið yfir sögu lífeyrissjóðanna, og uppbyggingu lífeyriskerfisins hér á landi sem byggir á sjóðsöfnun. Fjallað er um þátt aðila vinnumarkaðarins í útbreiðslu almennrar lífeyrissjóðsaðildar og skylduaðild að lífeyrissjóðum. Tæpt er á hvernig eignasafn lífeyrissjóðanna hefur vaxið og þróast frá því að vera að meginuppistöðu reist á skuldabréfum og sjóðfélagalánum yfir í fjölbreytta samsetningu eignaflokka með innlendum og erlendum verðbréfum sem leitt hafa til þess að lífeyrissjóðirnir eru í dag mikilsvirkur stofnanafjárfestir á fjármagnsmarkaði, m.a. á hlutabréfamarkaði. Annar kafli fjallar um uppbyggingu, stjórnkerfi og réttarheimildir lífeyrissjóða, m.a. mismunandi gerðir sjóða, lífeyrissjóði í félagaréttarlegu tilliti og rammalöggjöf um starfsemi sjóðanna; lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda nr. 129/1997. Fjallað er um hæfi, hæfni og val stjórnarmanna skv. lögum og samþykktum sjóðanna og borið saman við hlutafélagalöggjöfina og lög um fjármálafyrirtæki. Fjallað er um fjárfestingarstefnu og hluthafastefnu sjóðanna og alþjóðlegar leiðbeinandi reglur sem skilyrði fyrir fjárfestingum, samskipta- og siðareglur og kenningar um stjórnarhætti. Í þriðja kafla er gerð grein fyrir niðurstöðum könnunar sem lögð var fyrir stjórnendur allra aðildarsjóða Landssamtaka lífeyrissjóða, 33 sjóða, þar sem spurt var út í hagsmunagæslu sjóðanna sem hluthafar og hvort sjóðirnir beittu grundvallarréttindum á borð málfrelsis- tillögu- og atkvæðisrétti á hluthafafundum. Meginniðurstaða könnunarinnar er sú að lífeyrissjóðirnir hafa upp til hópa verið óvirkir hluthafar, einkum minni lífeyrissjóðir. Meginniðurstaða ritgerðarinnar er sú að reglur um hæfi og hæfni stjórnarmanna eru skýrar, skerpa þarf á reglum um val stjórnarmanna í sumum tilvikum. Þá er ástæða til að sjóðirnir setji sér allir reglur um skilyrði fyrir fjárfestingum sínum og viðhafi jafnframt virka eigendastefnu til að gæta hagsmuna sjóðfélaga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristján Geir Pétursson 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4925
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4925

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristján Geir Pétursson 1975-. Lífeyrissjóðir sem hluthafar. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4925