Back to results

University of Iceland

Auglýsingar og áhrifavaldar í tengslum við peningaspil: hver eru áhrifin og á hverja?

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um auglýsingar og áhrifavalda í tengslum við peningaspil og hvernig þær hafa áhrif á viðkvæma hópa; einkum börn, ungmenni og spilafíkla. Sjónum er beint að markaðsaðferðum peningaspila, bæði með hefðbundnum auglýsingum og áhrifavöldum á samfélagsmiðlum. Lögð er áhersla á duldar auglýsingar og sýnileika peningaspila á samfélagsmiðlum sem geta ýtt undir áhættuhegðun, breytt viðhorfum og aukið þátttöku í peningaspilum. Börn og ungmenni eru útsett fyrir miklu magni af auglýsingum á samfélagsmiðlum og sýna rannsóknir fram á að þessi markaðssetning auki líkur á þátttöku í peningaspilum og styrkir jákvæð viðhorf til þeirra. Slíkar auglýsingar hafa einnig áhrif á spilafíkla, þar sem þær geta virkað sem kveikjur fyrir þátttöku og aukið líkurnar á bakslagi á spilavanda. Notkun áhrifavalda í markaðssetningu peningaspila eykur trúverðugleika vörumerkja og ýtir undir félagslegt samþykki, sérstaklega meðal yngri kynslóða. Margir áhrifavaldar nota dulda markaðssetningu sem er siðferðislega vafasamt og með öllu ólöglegt. Til að draga úr skaðlegum áhrifum auglýsinga á peningaspilum eru lagðar fram tillögur um herðingu reglna og laga um slíka markaðssetningu, aukna fræðslu til barna og ungmenna um áhrif auglýsinga og aukið eftirlit með samfélagsmiðlum og áhrifavöldum. Aðgerðir af þessu tagi gætu hjálpað til við að vernda viðkvæma hópa og draga úr áhættuhegðun tengda peningaspilum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Viktoría Giorgia Cottino 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49143
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49143

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Viktoría Giorgia Cottino 2000-. Auglýsingar og áhrifavaldar í tengslum við peningaspil: hver eru áhrifin og á hverja?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49143