Back to results

University of Iceland

Verktakar og launtakar í íslensku samfélagi: Deila Bláfugls ehf. og FÍA

Abstract

dc:description.abstract

Þegar einstaklingur ræður sig til vinnu þarf að huga að ýmsum þáttum áður en skrifað er undir ráðningarsamning. Það á bæði við um umsækjanda sem og um atvinnurekanda. Í ritgerð þessari verður ítarlega farið yfir tvö helstu ráðningarsamböndin, verktöku og launtöku. Það er mikilvægt fyrir alla aðila að þekkja vel muninn á þessum tveimur samböndum, einkum hvað varðar réttindi og skyldur. Greinilegur munur er á réttindum þeirra sem starfa sem verktakar og launtakar eins og nánar má lesa um í ritgerðinni. Ásamt skilgreiningu á verktöku og launtöku verður gerð grein fyrir hugtakinu gerviverktaka og hvernig það á við. Komið verður inná skyldur vinnuveitandans í báðum ráðningarsamböndum og einnig er kafli um óhefðbundna ráðningarsamninga víða um Evrópu og þá aðallega í fluggeiranum. Í árslok 2020 var ellefu íslenskum flugmönnum sem störfuðu sem launþegar hjá íslenska fraktflugfélaginu Bláfugli ehf. sagt upp störfum í miðri kjaradeildu sem flugfélagið átti í við stéttarfélag flugmannanna, FÍA, og verktakar ráðnir inn í staðinn frá erlendum áhafnaleigum. Seinni hluti ritgerðinnar fjallar um fraktflugfélagið Bláfugl ehf. og vinnudeilu þeirra gegn þeim ellefu launþegum sem þeir sögðu upp. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á það hvers virði starfsfólk er fyrir vinnuveitanda sinn og hvort ódýrasta vinnuaflið sé í raun alltaf það hagkvæmasta þegar upp er staðið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jón Kristinn Örnólfsson 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48919
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48919

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jón Kristinn Örnólfsson 1999-. Verktakar og launtakar í íslensku samfélagi: Deila Bláfugls ehf. og FÍA. 2025. https://hdl.handle.net/1946/48919