Back to results

University of Iceland

Áhrif kosningakerfa á taktíska kosningahegðun: Samanburður á þingkosningum í Bretlandi, Svíþjóð og Þýskalandi

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er gerð heimildarannsókn og samanburðargreining með það að markmiði að skoða hvernig kosningakerfi hafa áhrif á taktíska kosningahegðun í þingkosningum. Í fræðilegum hluta ritgerðarinnar er farið yfir skilgreiningu og rannsóknir á taktískri kosningahegðun og hvaða hvatar liggja að baki því að fólk kýs taktískt. Jafnframt er farið yfir helstu kosningakerfi. Í samanburðargreiningu, með aðferð mismunar, eru kosningakerfi Bretlands, Svíþjóðar og Þýskalands skoðuð og metið hvað þau eiga sameiginlegt og hvað ekki. Með þeim hætti er skoðað hvernig kosningakerfi hafa áhrif á taktíska kosningahegðun. Niðurstaðan er að kosningakerfi hafa töluverð áhrif á þá hvata sem verða til þess að fólk kýs taktískt. Þannig hvetja meirihlutakerfi kjósendur til að kjósa taktískt, að „sóa“ ekki atkvæði sínu á ólíklegan frambjóðanda og kjósa þann eða þá sem hafa mestar sigurlíkur eða reyna að hindra að óæskilegur frambjóðandi fari með sigur af hólmi. Í hlutfalls- og blönduðum kerfum virðast ástæður taktískrar kosningahegðunar fjölbreyttari. Kjósendur vilja ekki „sóa“ atkvæði sínu, líkt og í meirihlutakerfum, en fjöldi og smæð margra flokka móta kosningahegðun enn frekar. Vaxandi hluti kjósenda kýs minni flokka til þess að viðhalda fjölbreyttri flokkaflóru og hafa áhrif á væntanlega stjórnarmyndun og -samstarf.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sindri Freyr Guðmundsson 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48874
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48874

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sindri Freyr Guðmundsson 2001-. Áhrif kosningakerfa á taktíska kosningahegðun: Samanburður á þingkosningum í Bretlandi, Svíþjóð og Þýskalandi. 2025. https://hdl.handle.net/1946/48874