University of Iceland
Tungumál og heilabilun: Nýting íslenskra máltæknitóla í greiningu klínískra málsýna
Abstract
dc:description.abstractAlzheimersjúkdómur (AS) er algengasta orsök heilabilunar og veldur hrörnun á ólíkum svæðum heilans, einkum þeim sem stjórna tungumáli, minni og hugrænni getu. Breytingar á málnotkun, svo sem brotakennd setningagerð og orðminniserfiðleikar, geta verið meðal fyrstu einkenna sjúkdómsins. Snemmgreining slíkra breytinga er lykilatriði í að veita skjólstæðingum viðeigandi meðferð á fyrri stigum sjúkdómsins. Í þessu verkefni var kannað hvort íslensk máltæknitól, Greynir og ABLTagger 3.0, nýtist í greiningu á málfræðilegri uppbyggingu klínískra málsýna frá einstaklingum með einkenni AS. Rannsóknarspurningin var hvort íslensk máltæknitól geti nýst til greiningar á setningagerð klínískra málsýna. ABLTagger 3.0 sýndi framúrskarandi árangur með réttmæti yfir 95%, jafnvel þegar unnið var með óhefðbundnar setningar sem eru algengar í máli einstaklinga með AS. Greynir gagnaðist hins vegar takmarkað í þáttun setninga úr málsýnum og náði aðeins 40% rétt þáttaðra setninga. Með sjálfvirkri stöðlun texta, framkvæmt með ByT5 leiðréttingarlíkani, jókst réttmætið upp í 62%. Rannsóknin sýnir mikilvægi þess að þróa tungumálasértæk máltæknitól sem nýtast í klíníska málsýnagreiningu, sérstaklega fyrir smærri málsamfélög eins og hið íslenska. Slík tól geta gengt lykilhlutverki til að auðvelda snemmgreiningu taugahrörnunarsjúkdóma með því að greina breytingar á tali og málnotkun sem oft koma fram á fyrstu stigum sjúkdómsins. Með greiningu málsýna er ekki aðeins hægt að bæta greiningarferlið heldur einnig fylgjast með framgangi sjúkdóma á borð við AS. Sjálfvirknivæðing málsýnagreiningar gæti auk þess reynst mjög hagnýt í starfi þeirra sem nota málsýni klínískt, en það eru fyrst og fremst talmeinafræðingar. Þessar framfarir gætu því almennt haft jákvæð áhrif á lífsgæði einstaklinga með AS og stuðlað að betri meðferðarúrræðum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Andrea Líf Erlendsdóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48847
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48847