Back to results

University of Iceland

Hryðjuverk samkvæmt 100. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940: Tilraun til hryðjuverka og undirbúningsathafnir

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður fjallað um hryðjuverkaákvæði 100. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Leitast verður við að varpa ljósi á inntak hryðjuverkaákvæðisins og gerð verður grein fyrir helstu álitaefnum ákvæðisins er varða tilraun til hryðjuverka og undirbúningsathafnir tengdar þeim. Fyrst verður farið yfir hvað felst almennt í hugtakinu hryðjuverk og síðan skoðað hvernig það er skilgreint samkvæmt lögum með tilliti til alþjóðasamninga. Því næst verður fjallað um tilraun til hryðjuverka og undirbúningsathafnir þeirra, en megináhersla verður lögð á þá umfjöllun. Verður þar litið til nokkurra álitaefna varðandi tilraunir til brota, en sérstaklega verður þó litið til orðalags 20. gr. hgl. þar sem hún er forsenda þess að unnt sé að sakfella einstakling fyrir brot ef hann hefur ótvírætt sýnt ásetning í verki. Fjallað verður ítarlega um fyrsta og eina dóminn sem fallið hefur hér á landi tengdan hryðjuverkum. Að lokum verður fjallað um danska, norska og sænska réttarframkvæmd er varðar tilraun til hryðjuverka og undirbúningsathafnir. Megináhersla verður þó lögð á danska löggjöf og farið verður yfir dóma úr danskri réttarframkvæmd.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bjarki Gunnar Steinarsson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48780
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48780

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjarki Gunnar Steinarsson 2000-. Hryðjuverk samkvæmt 100. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940: Tilraun til hryðjuverka og undirbúningsathafnir. 2024. https://hdl.handle.net/1946/48780