University of Iceland
Frá óvissu til öryggis: Upplifun einstaklinga með geðfötlun og vímuefnaröskun af sértækri búsetu Reykjavíkurborgar
Abstract
dc:description.abstractRannsóknin sem hér er lýst beinist að upplifun einstaklinga með geðfötlun og vímuefnaröskun sem búa í sértækri búsetu og nota þjónustu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við tilgangsúrtak og gögnum aflað með hálfstöðluðum viðtölum við tólf einstaklinga á aldrinum 24–72 ára sem öll eiga það sameiginlegt að vera með geðfötlun og vímuefnaröskun, búa eða hafa búið í sértækri búsetu, og notið þjónustu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Viðmælendur komu frá tíu búsetukjörnum undir málaflokki fatlaðs fólks hjá Reykjavíkurborg. Rannsóknin beindist að upplifun viðmælanda af búsetunni og áhrifum búsetunnar á lífsgæði þeirra, sjálfstæði og bata. Fræðilegur rammi rannsóknarinnar tók mið af hugmyndafræði skaðaminnkunar og húsnæði fyrst, lífsálfélagslega líkaninu, batakenningum og áfallakenningum. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að sértæk búseta veitir viðmælendum nauðsynlegt öryggi sem skapar forsendur fyrir bætt lífsgæði. Margir viðmælendur lýstu því að húsnæðið gerði þeim kleift að einbeita sér að daglegum verkefnum, rækta félagsleg tengsl og taka þátt í virkni eða vinnu. Þetta samræmist erlendum rannsóknum, samanber Padgett o.fl. (2015), Tsemberis o.fl. (2004) og Lindvig o.fl. (2019) sem sýna fram á mikilvægi húsnæðis sem grundvallarþátt í bataferli. Viðmælendur lýstu einnig áskorunum búsetunnar, svo sem skorti á opnum samræðum um vímuefnanotkun við starfsfólk og hindrunum tengdum vilja til aukins sjálfstæðis. Niðurstöður rannsóknarinnar undirstrika mikilvægi samþættrar þjónustu sem tekur tillit til bæði félagslegra og heilsutengdra þátta. Jafnframt leggja þær áherslu á nauðsyn þekkingar, virks notendasamráðs og einstaklingsmiðaðrar nálgunar í þjónustu við einstaklinga með geðfötlun og vímuefnaröskun. Lykilhugtök: Félagsráðgjöf, sértæk búseta, tvígreining, geðfötlun, vímuefnaröskun
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Katrín Björk Kristjánsdóttir 1997-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48756
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48756