Back to results

University of Iceland

Samkenndarþreyta og samkenndarsátt meðal félagsráðgjafa á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Þessi rannsókn fjallar um samkenndarþreytu og samkenndarsátt meðal félagsráðgjafa á Íslandi. Samkenndarþreyta felur í sér tilfinningalega og líkamlega þreytu sem stafar af því að hlusta á erfiða reynslu skjólstæðinga, á meðan samkenndarsátt lýtur að jákvæðri upplifun af því að veita aðstoð og sjá árangur vinnu sinnar. Í rannsókninni var notast við mælitækið Professional Quality of Life Scale (ProQol) til að meta þessi fyrirbæri og greina þá þætti sem hafa áhrif á þau, svo sem vinnuumhverfi, starfsreynslu og stuðningskerfi. Niðurstöðurnar sýna að meiri starfsreynsla tengist aukinni samkenndarsátt og minni samkenndarþreytu. Á hinn bóginn eru félagsráðgjafar sem starfa við álagsmikla málaflokka, svo sem barnavernd, líklegri til að upplifa hærri stig samkenndarþreytu. Stuðningsrík vinnuumhverfi, sem einkennast af góðri forystu og sterkum tengslum við samstarfsfólk, dregur verulega úr streitu og styður við vellíðan starfsmanna. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi sjálfsumönnunar og stofnanalegs stuðnings við að byggja upp seiglu meðal starfsmanna. Þessi rannsókn bætir við takmarkaða þekkingu á Íslandi á þessu sviði og veitir hagnýtar upplýsingar fyrir stefnumótun og skipulag vinnustaða. Með því að takast á við rót vandans sem veldur samkenndarþreytu og efla verndandi þætti er hægt að tryggja betri líðan og árangur félagsráðgjafa og skjólstæðinga þeirra. Niðurstöðurnar eru mikilvægt innlegg í áframhaldandi umræðu og aðgerðir varðandi sjálfbærni í starfi félagsráðgjafa og skyldra starfsgreina. Lykilorð: Félagsráðgjöf, samkenndarsátt, samkenndarþreyta, ProQol, vinnuumhverfi

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Anna Wium Pálmarsdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48741
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48741

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Anna Wium Pálmarsdóttir 1999-. Samkenndarþreyta og samkenndarsátt meðal félagsráðgjafa á Íslandi. 2024. https://hdl.handle.net/1946/48741