Back to results

University of Iceland

Greiningar á stærð kjálka hjá íslenska melrakkanum (Vulpes lagopus)

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn var unnið með alls fimmtíu og sjö sýni íslenskra melrakka (Vulpes lagopus) frá þremur landshlutum. Refirnir voru krufðir, kjálkar einangraðir, þeir myndaðir og stærð þeirra mæld. Tvær mæliaðferðir voru bornar saman, þ.e. handvirk aðferð og aðferð sem var gerð með ShapeR og skoðað var hvort þær gæfu svipaðar niðurstöður. Sjö breytur voru teknar saman sem endurspegla stærð kjálkanna, þrjár í handvirku aðferðinni og fjórar í shapeR aðferðinni. Einnig var skoðað hvort eyrnamíltar (Otodectes cynotis) fyndust í refunum og hvort þeir höfðu áhrif á kjálkastærð sýktu refanna. Gögn voru skráð og unnið var úr niðurstöðum með R studio forriti sem var notað fyrir alla tölfræðivinnslu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að fylgni milli aðferðanna var lág sem segir til um að aðferðirnar séu óháðar hvor annarri og gefa mismunandi upplýsingar um stærð kjálkanna. Fylgnin var þó há á milli svarbreytanna í bæði handvirku mælingunni og með shapeR aðferðinni. Það mátti sjá mun á kjálkastærð refa milli aðferða, þar sem meðallengd var meiri með shapeR aðferð heldur en með handvirkri mælingu, en með handvirkri mælingu er lengdin mæld án framtannar og með shapeR aðferð er lengdin mæld með framtönn sem gæti útskýrt muninn. Breytileiki í lengd kjálkanna var greind með fjölþátta fervikagreiningu í báðum aðferðum með tilliti til svæða, kynja og aldurs. Þá kom í ljós að lengd kjálka í handvirku mælingunni var ólík eftir kyni en ekki eftir svæði og aldri. Lengd kjálka með shapeR aðferðinni reyndist ekki ólík eftir svæði, kyni né aldri. Þegar skoðað var hvort eynamítlar gætu haft áhrif á kjálkastærðir refa á Vestfjörðum, þar sem eyrnamítlar fundust eingöngu á þeim landshluta og var meirihluti refa þar sýktir af eyrnamítlum, sýndu niðurstöður að eyrnamítlar höfðu ekki áhrif á kjálkalengd refanna. Með handvirkri mælingu var reiknuð meðallengd refakjálkanna á Vestfjörðum hjá ósýktu refunum aðeins hærri en hjá sýktu refunum, en með shapeR aðferð var reiknuð meðallengd refakjálkanna á Vestfjörðum hjá ósýktu refunum aðeins minni heldur en hjá sýktu refunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arnar Logi Ágústsson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48646
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48646

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Arnar Logi Ágústsson 2000-. Greiningar á stærð kjálka hjá íslenska melrakkanum (Vulpes lagopus). 2024. https://hdl.handle.net/1946/48646