Back to results

University of Iceland

Að vera eða ekki vera Íslendingur, er það spurningin? Athugun á sjálfsupplifun sjö einstaklinga sem hafa íslensku að öðru máli

Abstract

dc:description.abstract

Tileinkun annars máls er flókið ferli sem hefur verið rannsakað út frá ýmsum sjónarmiðum. Í þessari ritgerð verður fjallað um móðurmál, sjálf, máltileinkun og sjálfsupplifun á öðru máli. Farið verður yfir fræðilegan bakgrunn máltileinkunar þar sem helstu kenningar verða skoðaðar ásamt því að mismunandi skilgreiningar á tvítyngi verða ræddar í stuttu máli. Þá verður greint frá rannsóknum Jean-Marc Dewaele sem liggja til grundvallar rannsóknarinnar sem ritgerð þessi byggir á. Í rannsóknarverkefninu var unnið út frá fyrirbærafræðilegu sjónarhorni. Meginmarkmið var að athuga hvort einstaklingar sem tileinka sér íslensku sem annað mál upplifi sig stundum „öðruvísi“ þegar þeir tala íslensku. Þátttakendur rannsóknarinnar voru sjö einstaklingar sem nota íslensku í daglegu lífi en hafa hana ekki að móðurmáli. Skoðað var hvaða þættir kynnu að hafa áhrif á sjálfsupplifun þeirra í samskiptum við íslenskumælendur. Gagna var aflað með spurningakönnun og einstaklingsviðtölum sem greind voru með þemagreiningu. Niðurstöður rannsóknarinnar reyndust vera í samræmi við fyrirliggjandi rannsóknarniðurstöður Dewaele, þ.e.a.s. að um tveir þriðju þátttakenda sögðust stundum upplifa sig öðruvísi þegar þeir skipta á milli tungumála. Könnunin staðfesti jafnframt að ástæðurnar sem liggja þar að baki séu bæði persónubundnar og margvíslegar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sanna Hendrikje Elísabetardóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48548
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48548

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sanna Hendrikje Elísabetardóttir 1979-. Að vera eða ekki vera Íslendingur, er það spurningin? Athugun á sjálfsupplifun sjö einstaklinga sem hafa íslensku að öðru máli. 2024. https://hdl.handle.net/1946/48548