Back to results

University of Iceland

Ungt fólk til afreka : helstu grunnþættir að velgengni ungmenna í íþróttum

Abstract

dc:description.abstract

Þessari greinargerð, sem er lokaverkefni til B.Ed. prófs í heilsueflingu og heimilisfræði við deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, fylgir bæklingur. Bæklingurinn sem nefnist Ungt fólk til afreka er hugsaður fyrir ungmenni, á aldrinum 13 - 18 ára, til að auka þekkingu sína á þeim þáttum sem skipta máli til að ná auknum árangri í sinni íþrótt. Í greinargerðinni er fjallað um fræðin sem styðja við það sem kemur fram í bæklingnum. Með bæklingnum grípum við ungmenni sem hafa áhuga á að efla þekkingu sína á sviði heilbrigðs lífernis og til aukins árangurs í sinni íþrótt. Það er krefjandi að vera partur af nútímasamfélagi þar sem allt þýtur áfram á miklum hraða og mikilvægt er að vera vel vakandi fyrir öllum þeim boltum sem þarf að halda á lofti. Grunnþættir heilbrigðis; næring, hreyfing og svefn eru allt mikilvægir vinklar sem þurfa að vinna vel saman svo árangur náist. Farið er yfir mikilvægi þess að temja sér góðar venjur, með skipulagi og markvissri markmiðasetningu er möguleiki að ná þangað sem ungur afreks einstaklingur stefnir. Gott er að leggja áherslu á að skapa góðar venjur tengdar næringu og svefni svo árangurs megi vænta tengt hreyfingu og æfingum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Guðný Hrefna Sverrisdóttir 1982-
  • Sandra Sif Úlfarsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48351
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48351

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðný Hrefna Sverrisdóttir 1982-; Sandra Sif Úlfarsdóttir 1989-. Ungt fólk til afreka : helstu grunnþættir að velgengni ungmenna í íþróttum. 2024. https://hdl.handle.net/1946/48351