Back to results

University of Iceland

Frumþættir myndlistar sem námsefni : myndlistarkennsla fyrir yngsta stig

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessa M.Ed.-verkefnis er að hanna námsefni fyrir myndlistarkennslu á yngsta stigi í grunnskóla sem er heildstætt og kveikir áhuga nemenda á sköpun. Verkefnið er annars vegar fólgið í hönnun verkefnabókar fyrir myndmenntakennslu og hinsvegar fræðilegri greinargerð sem skýrir forsendur bókarinnar og val verkefna. Ákveðinn hluti af verkefnunum verður einnig í framhaldi birtur á vefsíðunni Listavefurinn.is. Tilgangurinn með því að birta verkefnin þar er að auka aðgengi kennara að skapandi verkefnum í myndmenntakennslu. Í þessari ritgerð er fjallað um rannsóknir og kenningar um myndlistarkennslu, ásamt því sem ég geri grein fyrir eigin starfskenningu. Fagmiðuð listkennsla (e. Discipline Based Art Education (DBAE)) fléttar saman listasögu og listrýni ásamt listsköpun og fagurfræði sem hentar vel til að skapa heildræna nálgun. Aðferðin hefur þó verið gagnrýnd fyrir að vera með of stífan ramma og tengja illa við samtímalist svo ég ákvað að styðjast við hluta af aðferðinni samhliða minni eigin starfskenningu. Verkefnið styðst einnig við Aðalnámskrá grunnskóla, frumþætti myndlistar, Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og grunnþætti menntunar. Við framkvæmd M.Ed.-rannsóknarinnar veturinn 2023-2024 hefur höfundur þróað og prófað ýmis verkefni við kennslu í myndlist gegnum vettvangsnám í M.Ed.-náminu og þá sérstaklega meðal barna á yngsta stigi í Barnaskólanum í Hafnarfirði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnhildur Róbertsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47599
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47599

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Ragnhildur Róbertsdóttir 1994-. Frumþættir myndlistar sem námsefni : myndlistarkennsla fyrir yngsta stig. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47599