Back to results

University of Iceland

„Þegar ég ferðast ein er ég meira frjáls“: Helstu hvatar og hindranir til sóló ferðalaga meðal íslenskra kvenna

Abstract

dc:description.abstract

Ferðalög skipa stóran sess í lífi fólks í okkar samtíma og þróun ferðamennsku hefur verið hröð síðustu áratugi. Sá ferðamáti að ferðast ein er áberandi birtingarmynd þessarar þróunar en svokölluð sóló ferðalög hafa vaxið mjög að vinsældum, sérstaklega frá árinu 2015. Á það við um fólk af öllum kynjum þó aðgengi kvenna og forsendur til ferðalaga hafi ekki verið þær sömu og karla í gegnum tíðina. Ferðahegðun kvenna hefur þróast í takti við félagslegt og pólitískt samhengi allt frá lokum nítjándu aldar. Sérstaka athygli vekur að merki eru um að sóló ferðamennska sé jafnvel vinsælli meðal kvenna en karla í dag. Ljóst er ýmsar persónulegar og menningarlegar aðstæður hafa áhrif á þá hvata og hindranir sem stýra ferðahegðun fólks. Markmið þessarar rannsóknar var að öðlast innsýn í hvaða hvatar og hindranir liggja að baki sóló ferðamennsku meðal kvenna á Íslandi. Spurningarkönnun með stöðluðum spurningum um bakgrunnsupplýsingar auk opinna spurninga var lögð fyrir meðal kvenna sem hafa ferðast einsamlar og þær greindar með eigindlegum aðferðum. Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að bæði hvatar og hindranir svarenda til sólóferðalagaeru mikið til samsvarandi því sem þekkist úr erlendum rannsóknum. Helstu hvatar reyndust vera upplifað frelsi, valdeflandi nýjar upplifanir og ævintýr og skortur á ferðafélaga. Helstu hindranir sem fram komu eru óöryggi, félagslegar takmarkanir og einmannaleiki. Megin niðurstaða rannsóknar er að hvatarnir og jákvæðar upplifanir af sóló ferðalögum þátttakendavega þyngra en hindranirnar, enda hafa svarendur kosið að ferðast einar þrátt fyrir ýmsar hindranir og segjast myndu gera það aftur

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jónheiður Anna Thorlacius 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47136
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47136

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jónheiður Anna Thorlacius 1997-. „Þegar ég ferðast ein er ég meira frjáls“: Helstu hvatar og hindranir til sóló ferðalaga meðal íslenskra kvenna. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47136