Back to results

University of Iceland

Tvíeggja sverð tækninýjunga. Þróun sjálfsafgreiðslu í matvöruverslunum.

Abstract

dc:description.abstract

Miklar breytingar hafa átt sér stað undanfarna áratugi vegna tæknilegrar þróunar. Þjónusta í formi sjálfsafgreiðslu hefur rutt sér til rúms og eru matvöruverslanir þar ekkert undanskildar. Ákveðið var að rýna í þessar breytingar og kanna hvaða áskoranir og tækifæri þessi nýsköpun hefði í för með sér. Markmið rannsóknarinnar var að skoða þróun smásölu út frá tækninýjungum á matvörumarkaði, með sérstaka áherslu á sjálfsafgreiðslu. Skoðað var hvað hafi drifið þessa þróun áfram, hvaða áskoranir gætu fylgt tækninýjungum í þjónustuumhverfi og hver væri möguleg framtíðarsýn. Jafnframt var leitað svara við því hvaða þættir það væru sem hafi áhrif á val neytenda þegar kemur að sjálfsafgreiðslu, hver upplifun þeirra væri og hvernig þessar breytingar hefðu áhrif á kauphegðun neytenda. Rannsóknin var bæði megindleg og eigindleg þar sem notast var við spurningakönnun sem og viðtal við rekstraraðila. Notast var við þessar tvær aðferðir til að fá víðara sjónarhorn og dýpri skilning á viðfangsefninu. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós mismunandi upplifanir og viðhorf gagnvart lausninni. Spurt var út í fjóra þætti er varða kauphegðun neytenda, þá mikilvægi staðsetningar, verðs, gæða og sjálfsafgreiðslu. Í ljós kom að sjálfsafgreiðsla vó minnst af þessum þáttum, en staðsetning, verð og gæði vógu mest. Jafnframt fannst nánast enginn munur á viðhorfi neytenda til staðsetningar, gæða og lágs verð út frá þeim sem nýttu sér frekar sjálfsafgreiðslu og þeim sem gerðu það ekki. Þegar horft var til þess hvaða þættir drifu áfram þróun sjálfsafgreiðslu og mögulega framtíðarsýn voru niðurstöðurnar þægindi, rekstrarhagræðing, samfélagsleg áhrif og áframhaldandi tækniþróun. Niðurstöður rannsóknarinnar veita bæði dýpri skilning á áhrifum tækninýjunga á matvörumarkaðinum og hafa hagnýtt gildi, þar sem fyrirtæki geta nýtt sér þessar upplýsingar til að bæta rekstur og auka samkeppnishæfni í framtíðinni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arnfríður Árnadóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46953
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46953

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arnfríður Árnadóttir 1984-. Tvíeggja sverð tækninýjunga. Þróun sjálfsafgreiðslu í matvöruverslunum.. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46953