University of Iceland
Samanburður á sveiflum í ávöxtun hlutabréfa. Eru sveiflur í ávöxtun innlendra hlutabréfa meiri en í erlendum mælt frá sjónarhóli íslenskra fjárfesta?
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni þessarar ritgerðar er að gera samanburð á sveiflum í ávöxtun hlutabréfa á innlendum og erlendum hlutabréfamörkuðum yfir tímabilið 2009 til 2024. Miklar sveiflur hafa einkennt hlutabréfamarkaði um allan heim undanfarna áratugi. Orsakir sveiflna eru ýmiskonar og hafa þær flestar á einn eða annan hátt áhrif á væntingar og viðhorf markaðsaðila hvað varðar stöðu mála á hlutabréfamarkaði. Sú þróun sem verið hefur á hlutabréfaverði á Íslandi síðastliðin 15 ár er alla jafna í takt við þá þróun sem sjá má á erlendum hlutabréfamörkuðum. Með það í huga var í þessari ritgerð framkvæmd rannsókn í þeim tilgangi að kanna hvort meiri sveiflur séu í ávöxtun hlutabréfa á Íslandi heldur en á erlendum mörkuðum, mælt frá sjónarhóli íslenskra fjárfesta. Samanburður var gerður á íslenskum hlutabréfamarkaði og fimm erlendum hlutabréfamörkuðum: bandarískum, breskum, þýskum, sænskum og japönskum. Í rannsókninni var stuðst við söguleg gögn um hlutabréfavísitölur hvers markaðar yfir rannsóknartímabilið og einnig var stuðst við gögn um gengi íslensku krónunnar gagnvart samsvarandi erlendum gjaldmiðlum. Niðurstöður voru fengnar með framkvæmd tilgátuprófa þar sem íslenska vísitalan OMXI15 var borin saman við hverja erlendra vísitölu í íslenskum krónum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru tvískiptar. Annars vegar sýndu niðurstöðurnar marktækt meiri sveiflur í ávöxtun hlutabréfa á Íslandi samanborið við sveiflur í ávöxtun bandarískra og breskra hlutabréfa, séð frá sjónarhóli íslenskra fjárfesta. Hins vegar sýndu þær marktækt minni sveiflur í ávöxtun hlutabréfa á Íslandi samanborið við sveiflur í ávöxtun þýskra, sænskra og japanskra hlutabréfa, séð frá sjónarhóli íslenskra fjárfesta.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Vanessa Þóra Posch 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46903
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46903