Back to results

University of Iceland

Heimastjórnarkerfi Múlaþings: Afstaða íbúa Múlaþings til heimastjórnarkerfisins og hvort það stuðli að þátttökulýðræði

Abstract

dc:description.abstract

Sameiningar sveitarfélaga hafa verið tíðar undanfarna áratugi þar sem fleiri og stærri verkefni hafa verið færð frá ríkinu yfir á stjórnsýslustig sveitarfélaga. Vaxandi krafa til sveitarfélaga um aukna ábyrgð og eflingu þjónustu hefur orðið til þess að sveitarfélög hafa tekið ákvarðanir um að sameina krafta sína. Vitundavakning hefur einnig orðið um mikilvægi samráðs og þátttöku af hálfu íbúa til að gæta hagsmuna sinna, sem sveitarfélög þurfa að koma til móts við.Heimastjórnarkerfi Múlaþings var stofnað í aðdraganda sameiningar fjögurra minni sveitarfélaga sem forsenda hennar. Það er fyrsta stigskipting stjórnsýslu af sinni gerð hérlendis. Tilgangur og markmið kerfisins er að tryggja áhrif og aðkomu íbúa að nærumhverfi sínu. Markmið rannsóknarinnar var að kanna afstöðu íbúa Múlaþings til heimastjórnarkerfisins og áhrifa þess á þátttökulýðræði til þess að komast að því hvort að upplifun íbúa sé í samræmi við tilgang og markmið kerfisins. Efni rannsóknarinnar var skoðað út frá kenningum um þátttökulýðræði og valddreifingu og þeim kostum og göllum sem geta fylgt því í sameinuðu sveitarfélagi. Einnig er rætt um ólíkar birtingamyndir lýðræðis sem og ólík sjónarhorn þeirra sem berjast fyrir og gegn sameiningum sveitarfélaga og auknu valdi og þátttöku íbúa. Niðurstöður benda til að íbúar Múlaþings geri sér grein fyrir mikilvægi heimastjórnarkerfisins sem stjórntækis, en að margir þeirra upplifi að núverandi fyrirkomulagi þess sé ábótavant og stuðli ekki endilega að þátttökulýðræði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hanna Dóra Nachisichi Helgudóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46556
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46556

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hanna Dóra Nachisichi Helgudóttir 1987-. Heimastjórnarkerfi Múlaþings: Afstaða íbúa Múlaþings til heimastjórnarkerfisins og hvort það stuðli að þátttökulýðræði. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46556