Back to results

University of Iceland

Upplifun barna af því að alast upp hjá foreldri með vímuefnaröskun eða geðröskun og afleiðingar. Okkar heimur og SÁÁ

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari heimildaritgerð safnaði höfundur gögnum um rannsóknir og kenningar úr ritrýndum fræðilegum greinum og fagbókum og með upplýsingaviðtölum við barnasálfræðing hjá SÁÁ og starfsmann Okkar heims. Samkvæmt greiningarviðmiðum DSM-5 og ICD-11 er vímuefnaröskun sjúkdómur sem hefur áhrif á heilastarfsemi einstaklings og hegðunarmynstur, sem getur valdið alvarlegum skaða. Geðraskanir geta verið alvarlegar og eru taldar vera fjölþættur vandi sem tengist einstaklingsbundnum, félagslegum og klínískum þáttum. Rannsóknir hafa sýnt að börn sem alast upp hjá foreldri með vímuefnaröskun og/eða geðrænan vanda taka oft að sér hlutverk umönnunaraðila og eru í töluverðri áhættu hvað það varðar að þróa með sér sambærileg veikindi og foreldrar þeirra. Tilgangur þessarar ritgerðar er að skoða hverjar geta verið afleiðingar þess fyrir börn að alast upp hjá foreldrum með vímuefnaröskun eða geðrænan vanda. Niðurstöður rannsókna sýna að vímuefnaröskun og/eða geðröskun sem einstaklingur glímir við hefur ekki einungis áhrif á hann heldur alla innan fjölskyldunnar. Samkvæmt rannsóknum og ummælum fagfólks upplifa börn sem eiga foreldra í þessari stöðu oft skömm og finnst erfitt að tjá sig um heimilisaðstæður sínar og líðan. Kenningar sýna mikilvægi góðra tengsla milli barna og foreldra en þegar foreldri glímir við vímuefnavanda eða geðrænan vanda getur reynst þeim erfitt að veita börnum þann stuðning sem þau þurfa, sem getur haft neikvæðar afleiðingar á börnin til lengri tíma. Í dag eru það einungis SÁÁ og Okkar heimur sem veita börnum undir 12 ára aldri, sem búa við geðraskanir og vímuefnaröskun foreldra, ráðgjöf og stuðning. Samkvæmt nýlegum lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86 frá 2021, er lögð áhersla á að börn og foreldrar eigi rétt á viðeigandi aðstoð. Lögin leggja þær skyldur á opinbera aðila að greina vanda barna og sjá þeim fyrir viðeigandi þjónustu. Félagsráðgjöf Vímuefnaröskun Geðröskun Börn

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hildur Margrét Arnbjargardóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46423
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46423

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hildur Margrét Arnbjargardóttir 1995-. Upplifun barna af því að alast upp hjá foreldri með vímuefnaröskun eða geðröskun og afleiðingar. Okkar heimur og SÁÁ. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46423