Back to results

University of Iceland

Lífsgæði einstaklinga sem fá viðhaldsmeðferð í læknisfræðilegum tilgangi - skaðaminnkandi lyfjameðferð

Abstract

dc:description.abstract

Á Íslandi hefur verið gefin viðhaldslyf til meðferðar við ofnotkun morfínskyldra lyfa frá árinu 1990. Viðhaldsmeðferðir og skaðaminnkandi lyfjameðferðir er gefið í læknisfræðilegum tilgangi til að draga úr óafturkræfum skaða sem leitt getur til dauðsfalla. Meðferðin hefur verið beitt víða erlendis og er tilgangur meðferðarinnar að koma í veg fyrir óafturkræfan skaða af völdum óhóflegrar lyfjanotkunar. Morfínskyld lyf bindast ópíum viðtaka í miðtaugakerfinu sem veitir breytta líðan meðan áhrif þess varir. Samspil heilbrigðisþjónustu og stuðning frá félagsþjónustu getur haft áhrif á andlegan og líkamlegan líða viðkomandi sem endurspeglast í bættum lífsgæðum. Markmið þessarar rannsóknarinnar var að kanna félagslegan stuðning og þjónustuþörf þeirra sem fá viðhaldsmeðferð eftir að hafa ánetjast morfínskyldum lyfjum með því að skoða félagslegan stuðning, búsetu og væntingar fólks sem hljóta slíka meðferð á Íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða viðhorf og reynslu einstaklinga sem fá viðhaldsmeðferð í læknisfræðilegum tilgangi og fá innsýn inn í stöðu þeirra sem þiggja slíka meðferð. Rannsakandi taldi þörf á að rannsaka hvað felst í því að fá viðhaldsmeðferð og hvernig hægt sé að koma í móts við afmarkaðan hóp fólks sem glímt hafa við alvarleg morfínfíkn vegna þess að takmarkaðar rannsóknir hafa verið gerðar um upplifun af viðhaldsmeðferðum á Íslandi. Niðurstöður rannsóknar benda til að almenn ánægja sé meðal fólks sem fær viðhaldsmeðferð á Íslandi og snýr gagnrýni að ólíkum lyfjameðferðum sé ábótavant og félagslegur stuðningur ekki að fullnægja þörfum þeirra. Stærsta áskorun viðmælenda var búseta og heimilisleysi þeirra sem ekki höfðu fasta búsetu. Önnur áskorun var félagslegar aðstæður og stuðningur sem hafði afgerandi áhrif á lífsgæði þeirra sem njóta meðferðarinnar.Lykilorð: Lífsgæði, morfínvandi, viðhaldsmeðferð, notendasamráð, valdefling, skaðaminnkun

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aníta Runólfsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45961
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45961

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aníta Runólfsdóttir 1993-. Lífsgæði einstaklinga sem fá viðhaldsmeðferð í læknisfræðilegum tilgangi - skaðaminnkandi lyfjameðferð. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45961