Back to results

University of Iceland

,,Það þarf alltaf að búa til þennan aga sem oft á tíðum er mesta áskorun". EOS aðferðafræði hjá Skeljungi í tengslum við stefnumótun

Abstract

dc:description.abstract

Stefna sem verkfæri hefur verið mikilvægt tól í marga áratugi til að skipulagsheild nái árangri. Fyrirtæki hafa notast við ýmis stefnumiðuð tól og tæki til að ná betri árangri og markmiðum sínum í skipulagsheildinni. Dæmi um slík verkfæri eru Bláahafsstefnan, OKR-aðferðin, KPI-aðferðin og 4dx-aðferðafræðin. Hér á landi hafa íslensk fyrirtæki byrjað að innleiða EOS aðferðafræðina (e. Entrepreneur Operating System) sem snýst um að aðstoða stjórnendur við að ná markmiðum sínum, leysa vandamál og byggja upp drifkraft með hagnýtum verkfærum.Markmið þessarar rannsóknar er að rannsaka EOS aðferðafræðina, kanna innleiðingu hennar í raunverulegu fyrirtæki og auka skilning á fræðilegum skilgreiningum stefnumótunar í tengslum við aðferðafræðina. EOS aðferðafræðin verður sérstaklega skoðuð hjá fyrirtækinu Skeljungi til að fá betri skilning á reynslu starfsmanna og persónulegu skoðun þeirra á aðferðafræðinni. Notast var við raundæmisrannsókn þar sem tekin voru sjö viðtöl við einstaklinga sem hafa reynslu og þekkingu á aðferðafræðinni hérlendis. Einnig var stuðst við gögn og skýrslur um efnið. Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að EOS aðferðafræðin er fyrirhuguð stefna (e. deliberate strategy) þar sem áhersla er lögð á að ná ætluðu markmiði og er miðlað af æðstu stjórnendum og er vandlega mótuð. Fyrirtæki setja sér ákveðin markmið í upphafi EOS innleiðingar og í kjölfarið myndast strangt skipulag og dagskrá til að ná þeim vikulega eða á ársfjórðungsfresti. Starfsmenn Skeljungs höfðu litla þekkingu og reynslu á öðrum verktólum stefnumótunar og því var aðferðafræðin fyrsta skipulagða kerfið í starfsemi þeirra. Viðmælendur voru almennt mjög jákvæðir gagnvart þessari innleiðingu þrátt fyrir að það hafi verið áskorun að læra á aðferðafræðina. Aðferðafræðin hjálpaði Skeljungi að ná markmiðum sínum og eru samskipti, teymisvinna og starfsánægja að aukast. Fundirnir eru orðnir markvissari og er auðveldara að leysa ákveðin vandamál í sameiningu og starfsmennirnir finna fyrir meiri tilgangi með starfinu. Hins vegar getur aðferðafræðin hentað misvel starfshlutverki starfsmanna og það ríkir óvissa með framtíðarsýn aðferðafræðinnar vegna komu nýrra stjórnenda og agaleysis.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Oliwia Julia Tómasdóttir S. 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45733
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45733

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Oliwia Julia Tómasdóttir S. 1999-. ,,Það þarf alltaf að búa til þennan aga sem oft á tíðum er mesta áskorun". EOS aðferðafræði hjá Skeljungi í tengslum við stefnumótun. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45733