University of Iceland
Effects of novel macrolide compounds on cell differentiation and barrier enhancement in colon epithelium
Abstract
dc:description.abstractIðrabólga er regnhlífarhugtak yfir bólgusjúkdóma í ristli og smáþörmum, en tvö megin form þess eru Crohn’s sjúkdómur og sáraristilbólga. Núverandi meðferðarmöguleikar eru meðal annars ónæmisstillandi lyf og sterar, en orsök sáraristilbólgu er ekki enn þekkt. Þekkt er að sýklalyfið Azithromycin (AZM), sem er makrólíði, hafi þekjustyrkjandi áhrif sem ekki tengjast sýklalyfjavirkni þess. EpiEndo Pharmaceuticals hafa því þróað afleiður af AZM þar sem sýklalyfjahluti lyfsins hefur verið fjarlægður, og kallast þessar afleiður barríólíðar. Í þessu verkefni voru ristilþekjufrumur notaðar til að meta áhrif barriolíðana á þekjuna í meltingarveginum. Frumurnar voru bæði ræktaðar í “air-liquid” og “liquid-liquid” frumuræktum þar sem styrkleiki þekjunnar var metinn með því að mæla rafviðnám þekjunnar. Til þess að líkja eftir umhverfi sáraristibólgu í frumurækt verða frumurnar meðhöndlaðar með bólguörvandi boðefnum. Viðbrögð frumanna verða skoðuð með því að meta tjáningu ýmissa gena, uppsöfnun fosfólípíða innan frumanna, lífvænleika, frumufjölgun og með mótefnalitun á þéttitengjum. Af þeim 15 lyfjum sem voru prófuð í verkefninu voru 9 sem hvorki höfðu áhrif á frumufjölgun né lífvænleika. Lyfin voru því næst skimuð fyrir þekjustyrkjandi eiginleikum en 6 þeirra hækkuðu rafviðnám frumuþekjunnar ásamt því að ýta undir uppsöfnun fosfólípíða innan frumanna. H&E litun sýndi einnig fram á að þær frumur sem voru meðhöndlaðar með þessum 6 lyfjum urðu stærri samanborið við ómeðhöndlaðar þekjufrumur. Barríólíðar eru nýr flokkur af lyfjum með þekjustyrkjandi eiginleikum. Sex þessarra lyfja sýna efnilegar niðurstöður varðandi þekjustyrkjandi eiginleika þeirra á ristilþekjufrumur í frumurækt. Frekari rannsóknir miða að því að prófa þessi lyf á “organ-on-a-chip” frumuræktunarmódeli og meta þá sameindafræðilega ferla sem liggja á bakvið þekjustyrkjandi eiginleika þessarra lyfja.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ragnheiður Olga Jónsdóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45427
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45427