Abstract
dc:description.abstractVefurinn Erró – Námsvefur, er náms- og kennsluefni í myndlist ætlað nemendum á unglingastigi grunnskólans og kennurum þeirra. Á honum er að finna upplýsingar af ýmsu tagi um myndlistarmanninn Erró – lífshlaup hans, verk, aðferðir og þær stefnur sem verk hans má kenna við. Á vefnum er einnig að finna fimmtán fjölbreytt verkefni ásamt tillögum að námsmati en öll tengjast verkefnin lífi og list Errós á einn eða annan hátt. Vefurinn er byggður upp með markmið Aðalnámskrár grunnskóla í huga. Greinargerðin lýsir framkvæmd verkefnisins, fjallar um mikilvægi myndlistarkennslu í skólastarfi, hvaða gildi námsvefur um myndlist hafi og hvernig byggja má námsefni í myndlist á hugmyndafræði einstaklingsmiðaðs náms og fjölgreindakenningar Howards Gardner. Leidd eru rök að því að vefur sem þessi sé vænleg leið til að kenna og efla þekkingu nemenda á myndlist og vel til þess fallinn að stuðla að auknum áhuga þeirra á faginu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Sóley Björt Guðmundsdóttir
- Vilhelmína Thorarensen
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/450
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/450