Back to results

University of Iceland

Heilandi rými á heilbrigðisstofnunum. Fræðileg samantekt

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Einstaklingar sem þurfa að leggjast inn á heilbrigðisstofnun eru í viðkvæmri stöðu og eru líklegri til að upplifa ýmsar tilfinningar eins og óöryggi, ótta, kvíða eða óvissu um framhaldið. Með aukinni áherslu á heildræna meðferð er þörf á að rannsaka betur hvaða áhrif umhverfið hefur á líðan og bataferlið í heild sinni. Mikilvægt er að þekkja og tileinka sér hvaða þættir geta skapað heilandi rými til þess að meðferð sem er veitt á heilbrigðisstofnun sé sem skilvirkust fyrir einstaklinginn. Tilgangur: Að kanna hver áhrif heilandi rýma eru á líðan einstaklinga á heilbrigðisstofnunum og samþætta nýlegar rannsóknir um efnið. Aðferð: Gerð var fræðileg samantekt og leitað í gagnabönkunum PubMed, Scopus og Cinahl eftir rannsóknargreinum um áhrif heilandi rýma á ensku sem komu út árin 2013-2023. Niðurstöður: Samtals stóðust ellefu rannsóknargreinar inntökuskilyrði. Rannsóknargreinunum var skipt niður eftir því hvaða efni þær fjölluðu um, það er hönnunarþætti, tengsl við náttúruna, jákvæða athyglisdreifingu og umlykjandi umhverfi. Niðurstöður rannsóknanna gáfu til kynna að heilandi rými geta haft jákvæð áhrif á líðan, bata og upplifun einstaklinga. Þættir eins og tenging við náttúruna, að hafa glugga sem hleypir inn dagsbirtu og hlýlegt umhverfi leiddi til betri líðan einstaklinga. Þeir tjáðu minni verki og dvöl þeirra á heilbrigðisstofnun styttist. Einnig er mikilvægt að einstaklingar geti haft stjórn á umhverfinu sínu og geti þar að leiðandi fundið fyrir meira öryggi. Ályktun: Heilandi rými á heilbrigðisstofnunum virðast geta haft jákvæð áhrif á líðan einstaklinga og stuðlað að árangursríkri heildrænni meðferð. Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk þekki hvernig umhverfið getur haft áhrif á heilsufar og líðan svo þeir geti lagt sitt af mörkum við hönnun rýmis og geti stuðlað að notalegu umhverfi og heilandi rými skjólstæðinga sinna. Lykilorð: Heilandi herbergi, Heilandi rými, Heilandi staður, Heilandi umhverfi, Ákjósanlegt heilandi rými og Gagnreynd hönnun

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Harpa Methúsalemsdóttir 1993-
  • Amit Anna Tabrizi 1994-
  • Klara Sigurgeirsdóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44158
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44158

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Harpa Methúsalemsdóttir 1993-; Amit Anna Tabrizi 1994-; Klara Sigurgeirsdóttir 1995-. Heilandi rými á heilbrigðisstofnunum. Fræðileg samantekt. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44158