Back to results

University of Iceland

Hvað einkennir sjúklinga sem fá meðferð í réttargeðþjónustu og hlutverk hjúkrunarfræðinga í meðferð þeirra? Fræðileg samantekt

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Réttargeðþjónusta vísar til þeirrar þjónustu sem sinnir ósakhæfum einstaklingum sem glíma við félagslegan og geðrænan vanda. Meðferð sjúklinga á réttargeðdeildum er ekki valkvæð sjúklingum og getur hjúkrun þeirra verið krefjandi og umfangsmikil. Verulegu máli skiptir að meta þarfir sjúklinga innan réttargeðdeilda á skilvirkan hátt til að veita árangursríka og einstaklingsmiðaða meðferð. Hlutverk hjúkrunarfræðinga er að sinna árangursríkri og öruggri meðferð sjúklinga. Tilgangur: Að varpa ljósi á það sem einkennir sjúklinga í réttargeðþjónustu, þarfir þeirra og hlutverk hjúkrunarfræðinga í meðferð þeirra. Með verkefninu er leitast við að svara rannsóknarspurningunni: Hvað einkennir sjúklinga sem fá meðferð í réttargeðþjónustu, hverjar eru þarfir þeirra og hvert er hlutverk hjúkrunarfræðinga í meðferð þeirra? Aðferð: Þessi ritgerð er fræðileg samantekt á rannsóknum sem fjalla um réttargeðþjónustu. Heimilda var leitað á kerfisbundinn hátt í þremur gagnagrunnum, PubMed, Scopus og Web of Science. Leitað var að rannsóknargreinum frá árunum 2015–2023 sem voru á íslensku eða ensku. Notast var við PRISMA flæðirit til þess að lýsa heimildaleit og niðurstöðum hennar. Niðurstöður: Alls voru 14 rannsóknir sem uppfylltu inntökuskilyrði sem sett voru. Sjúklingar í réttargeðþjónustu voru líklegri til að vera karlmenn með lágt menntunarstig, eiga sögu um vímuefnaneyslu og vera greindir með geðrofssjúkdóma. Helstu þarfir sjúklinganna voru að taka þátt og fá upplýsingar um eigin meðferð, njóta gagnkvæmrar virðingar og umönnun sem undirbýr þá fyrir það að fara aftur út í samfélagið. Hlutverk hjúkrunarfræðinga í meðferð sjúklinga í réttargeðþjónustu var að veita heildræna og einstaklingsmiðaða hjúkrun sem fól í sér að aðstoða sjúklinga að horfast í augu við afbrot sín, hvetja til þátttöku þeirra í meðferð og mynda árangursríkt meðferðarsamband. Ályktun: Greina má ákveðna þætti hjá sjúklingum á réttargeðdeildum og það sem helst einkennir þá. Mikilvægt er fyrir stjórnendur réttargeðdeilda að leggja áherslu á einstaklingsmiðaða meðferð og þátttöku sjúklinga í henni. Í niðurstöðum þessarar samantektar eru auk þess skýr skilaboð til kennara og fræðimanna í hjúkrun um mikilvægi kennslu og rannsókna í réttargeðhjúkrun sem skortir mjög hér á landi. Lykilorð: Réttargeðhjúkrun, þarfir og einkenni sjúklinga í réttargeðþjónustu, lýðfræðilegar breytur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Katrín Ingunn Björnsdóttir 1998-
  • Iðunn Hekla Heiðarsdóttir 1999-
  • Sigríður Jóna Rafnsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44072
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44072

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Katrín Ingunn Björnsdóttir 1998-; Iðunn Hekla Heiðarsdóttir 1999-; Sigríður Jóna Rafnsdóttir 1993-. Hvað einkennir sjúklinga sem fá meðferð í réttargeðþjónustu og hlutverk hjúkrunarfræðinga í meðferð þeirra? Fræðileg samantekt. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44072