Back to results

University of Iceland

Hún elsku besta María mín: Könnun á formgerð íslenskra nafnliða og stöðu sérnafnsgreinis innan hennar

Abstract

dc:description.abstract

Hin svokallaða ákveðniliðagreining nafnliða (e. DP-analysis) hefur tekið við af nafnliðagreiningunni (e. NP-analysis) að mestu leyti í nútímamálvísindum. Með ákveðniliðagreiningunni, þar sem spáð er fyrir hámarksvörpunum fyrir ákvæðisorð sem liggja yfir nafnorðsliðnum sjálfum, er hægt að sýna fram á hvers vegna mismunandi tungumál sýna fasta orðaröð innan nafnliða sem NP-greiningin, þar sem einungis er gert ráð fyrir einum haus í einni hámarksvörpun, getur ekki náð utan um. Þessari ritgerð er ætlað að vera könnun og prófun á þeirri formgerð sem Halldór Ármann Sigurðsson (2006) setur fram í þeim tilgangi að sjá hvort íslenska nafnliðsgerðin [persónufornafn]+[nafnorð] (sbr. ‚hún María‘) passi í það regluverk. Persónufornafnið í þessari nafnliðsgerð verður hér kallað sérnafnsgreinir (e. preproprial article) en hann hefur lítið verið rannsakaður í íslensku. Í fyrri helming ritgerðarinnar mun sjást að formgerðin er ekki fullkomin þar sem færslur innan hennar brjóta gegn hausafærsluhömlunni (e. head movement constraint) en það sem hér er kallað klasafærsla er möguleg lausn á því vandamáli. Í síðari helmingnum verður formgerðin sem dregin er fram í fyrri hlutanum notuð til að greina sérnafnslega liði. Gegnum tölfræði og setningatilvik úr Markaðri íslenskri málheild sýni ég fram á að sérnafnsgreinirinn merkir nafnliði á þann hátt að ef sérnafnsgreinishaus er til staðar í liðnum, tómur eða með sérnafnsgreini, er hægt að túlka nafnorðshausinn sem eins konar sérnafn eða að minnsta kosti greinislausa vísun í ákveðna manneskju. Tvö meginskilyrði fyrir því að ákveðniliðshaus geti talist sérnafnsgreinir mun ég draga fram: (i) Nafnorðið í nafnliðnum er langtum oftar notað án greinis í íslensku en með, og (ii) nafnorðið vísar í ákveðna einingu þegar það er notað án greinis (eða án greinis og með eignarlið).

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Andri Pétur Dalmar Dagnýjarson 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43993
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43993

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Andri Pétur Dalmar Dagnýjarson 1993-. Hún elsku besta María mín: Könnun á formgerð íslenskra nafnliða og stöðu sérnafnsgreinis innan hennar. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43993