Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð hefur smásagan „Compagnons“ eftir bretónska rithöfundinn Louis Guilloux verið þýdd á íslensku. Sagan kom út árið 1932 og var endurútgefin 1953 ásamt skáldsögunni La Maison du peuple í ritröðinni Les Cahiers Rouges. Sagan hefur hlotið nafnið Félagar í íslensku þýðingunni. Guilloux er lítt þekktur hér á landi og hefur ekki verið þýddur áður á íslensku. Eitt af því sem einkennir verk hans er að hann leggur sig fram um að halda í ólík málsnið tungumálsins, ekki síst þegar sögupersónur af lægri stéttum eiga í hlut. Það gerir starf þýðandans snúið þar sem stéttaskipting og uppruni hefur haft takmörkuð áhrif á þróun íslensks máls og afbrigði þess. Í fyrri hluta ritgerðarinnar er greinargerð þar sem byrjað er á stuttri umfjöllun um höfundinn, því næst er farið yfir þýðingarferlið, þau vandamál sem upp komu og hvernig þau voru leyst. Síðari hluti ritgerðarinnar inniheldur svo þýðinguna sjálfa.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Magnea Jóhannsdóttir 1949-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- fr
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43921
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43921