Back to results

University of Iceland

Ógilding fjárskiptasamninga skv. 2. mgr. 95. gr. hjúskaparlaga

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerð þessari var tilraun gerð til þess að varpa ljósi á inntak ógildingarreglu fjárskiptasamninga skv. 2. mgr. 95. gr. hjl., nánar tiltekið efnisskilyrði hennar um bersýnilega ósanngirni á samningstíma. Við mat á því hvort samningur teljist bersýnilega ósanngjarn í skilningi ákvæðisins er grundvallaratriði að skoða að hve miklu leyti er vikið frá svonefndri helmingaskiptareglu 104. gr. hjl. Í réttarframkvæmd hefur ekki verið talið nóg að vikið sé frá helmingaskiptareglunni, til þess að ógilda fjárskiptasamning, en því meira sem frávikið er, því líklegra er að samningi fáist hnekkt. Matið er heildstætt og litið er til atriða á borð við stöðu samningsaðila þegar sest var að samingsborði, svo sem tekjur og fjárhag að öðru leyti, þekkingu á eignastöðu búsins, og menntun eða reynslu af samningsgerð. Jafnframt er kannað aðdraganda samningsgerðar, m.a. hvort aðilar fengu aðstoð lögmanns, hvor átti frumkvæði að samningsgerð og hvort þeir hafi sett fram sérstakar kröfur við samningsgerðina. Einnig þarf að meta skýrleika samnings, vilja samningsaðila og andlegt ástand þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Daníel Hákon Friðgeirsson 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43576
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43576

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Daníel Hákon Friðgeirsson 1997-. Ógilding fjárskiptasamninga skv. 2. mgr. 95. gr. hjúskaparlaga. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43576