Back to results

University of Iceland

Túlkun samninga samkvæmt traustskenningunni að íslenskum rétti

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er fjallað um traustskenninguna, sem byggir á því að samninga beri að túlka til samræmis við þann vilja sem móttakandi tilboðs hafði, við samningsgerðina, til þess að samningurinn þýddi. Leitast er við að svara því, hvort traustskenningin gildi sem regla að íslenskum rétti, og þá hvert gildissvið hennar er. Í upphafi er almennt fjallað um túlkun samninga og það ferli sem þá fer fram, auk þess sem vikið er að meginstefum í túlkun samkvæmt einni og annarri hugmyndafræði. Þá er fjallað um nokkrar reglur sem hafa ber til hliðsjónar við túlkun samninga. Traustskenningin er því næst tekin sérstaklega til skoðunar og hún sett í samhengi við aðrar hugsanlegar túlkunarkenningar. Litið er til fyrri skrifa fræðimanna um kenninguna og réttarheimilda sem varpa ljósi á þýðingu hennar. Þá er kannað hvort að dómaframkvæmd veiti vísbendingu um beitingu hennar. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að fátt liggi ljóst fyrir hvað varðar þá hugmyndafræði sem gildir um túlkun samninga að íslenskum rétti. Ákveðnar vísbendingar má finna um samsvörun traustskenningarinnar við 1. mgr. 32. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, en að öðru leyti styðja réttarheimildir fátt í þeim efnum. Þá er dómaframkvæmd óljós hvað þetta varðar en veitir þó vísbendingu í þá átt að samningar séu að miklu leyti túlkaðir með hlutlægum hætti til samræmis við réttmætar væntingar samningsaðila.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gísli Laufeyjarson Höskuldsson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43551
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43551

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gísli Laufeyjarson Höskuldsson 2000-. Túlkun samninga samkvæmt traustskenningunni að íslenskum rétti. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43551