Back to results

University of Iceland

Stýrivextir og verðbólga - Hver er áætluð framtíðarþróun verðbólgu á Íslandi til styttri tíma litið?

Abstract

dc:description.abstract

Upp úr aldarmótum var sú ákvörðun tekin af Seðlabanka Íslands að einbeita sér minna að gengi gjaldmiðils landsins og taka í staðinn upp verðbólgumarkmið og þar með stuðla að stöðugra verðlagi. Stöðugt verðlag hefur ýmis jákvæð áhrif á hagstærðir landsins eins og t.d. kaupmátt, það dregur úr ýmsum kostnaði og minnkar óvissu. Hagkerfi okkar Íslendinga er ólíkt öðrum í heiminum að því leiti að við erum fámenn þjóð, og þá talsvert færri en mörg ríki sem einnig eru talin eru smá. Ofan á það er hagkerfið okkar opið, og erum við með sjálfstæða mynt. Lítið hagkerfi eins og okkar getur því verið mjög háð öðrum ríkjum hvað varðar þróun verðbólgunnar. Ef litið er á verðbólguþróun frá síðustu aldarmótum hefur gengið illa að halda verðbólgunni innan settra markmiða og fylgir því mikil óvissa fyrir neytendur og fyrirtæki. Einnig hefur verðbólga verið mjög sveiflukennda sem slævir verðskyn neytenda og gerir erfiðara fyrir fyrirtæki að taka réttar fjárfestingarákvarðanir. Því er litið á það sem svo að meginframlag peningastefnunnar sé að stuðla að verðstöðugleika og þar með almennri velferð á Íslandi. Eftir verðbólguhækkanir síðastliðin ár er forvitnilegt að fara yfir þær spár sem til eru hvað varðar framtíðarþróun verðbólgunnar. Allir aðilar virðast sammála því að von sé á lækkun verðbólgu á næstu árum og að hægt og rólega komist hún í rétt horf ef ekkert

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynjar Smári Elvarsson 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43279
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43279

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynjar Smári Elvarsson 1994-. Stýrivextir og verðbólga - Hver er áætluð framtíðarþróun verðbólgu á Íslandi til styttri tíma litið?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43279